PCC BakkiSilicon ehf., sem rekur kísilverið á Bakka á Húsavík, var rekið með rúmlega 30 milljarða tapi árið 2025. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrirtækisins.
Heildartap fyrirtækisins árið 2025 nam 244,2 milljónum dollara, samanborið við 62,5 milljón dollara taprekstur árið 2024. Þar af má rekja 141,6 milljónir dollara, sem samsvarar um 17,6 milljörðum íslenskra króna, til virðisrýrnunar á lóð verksmiðjunnar, verksmiðjunni sjálfri og öðrum tækjabúnaði fyrirtækisins.
Heildartekjur fyrirtækisins vegna sölu á kísilmálmi og hliðarafurðum árið 2025 námu 36,6 milljónum dollara (4,5 milljörðum króna), samanborið við 83,7 milljónir dollara (10,4 milljarða króna) árið 2024.
Framleiðsla í kísilverinu var stöðvuð í júlí 2025 vegna bágrar stöðu kísilmarkaðarins og truflana á alþjóðaviðskiptum, segir í skýringu við uppgjörið. Framkvæmdastjórn hafi því borið kennsl á merki um virðisrýrnun verksmiðjunnar og í kjölfarið lagt mat á hana.
Bókfært virði lóðar, verksmiðju og tækjabúnaðar nam áður 298 milljónum dollara (37 milljörðum króna) en var í lok árs 2025 metið 174 milljónir dollara (21,6 milljarðar króna).
Gera ráð fyrir endurræsingu 2027
Við matið var gert ráð fyrir því að framleiðsla hefjist á ný árið 2027 og að báðir ofnar verksmiðjunnar verði í fullri virkni frá 2028. Þá segir að verðmatið sé einna viðkvæmast fyrir tímasetningu gangsetningarinnar en einnig kísilverði og vaxtastigi.
Virðið var meðal annars reiknað út frá áætluðu fjárstreymi 2026-2040. Sú áætlun byggir á samþykktri fjárhagsáætlun 2026-2028 og langtímaáætlun 2029-2040 frá því í janúar. Notast hafi verið við svo langt spátímabil meðal annars vegna þess að búast megi við því að verksmiðjan endist í að minnsta kosti 25 ár til viðbótar.
