Vilji íbúa til vindorkuvers á Sauðahálsi á Langanesi verður athugaður í könnun sem verður lögð fyrir íbúa sveitarfélagsins á næstu vikum. Slíkt var íbúum Norðurþings ekki boðið upp á eins og fram hefur komið í fréttum RÚV um vindorkuver á Hnotasteini.
Frestur til að skila inn umsögnum í Skipulagsgátt við fyrirhugað vindorkuver Qair við Hnotastein rann út í gær. Alls barst 51 umsögn og hrönnuðust þær inn síðustu daga umsagnarferlisins. Þá hafa 1500 manns hafa skrifað undir lista á Ísland.is til að mótmæla fyrirhuguðu vindorkuveri.
Friðjón Þórðarson er forstjóri Qair á Íslandi:
„Fyrir tveimur dögum voru komnar átta umsagnir. Núna hafa þær hrannast inn svona á lokametrunum. Við eigum eftir að skoða þetta almennilega. Við hlustum alltaf á gagnrýni og fögnum allri gagnrýninni orðræðu um svona verkefni. Nánast öll orkuverkefni á Íslandi hafa hlotið mikla gagnrýni,“ segir Friðjón.
Samfélagslegur ávinningur verði mikill
Friðjón segir alltaf vera rask af orkuframkvæmdum og vindorkan sé sýnileg en hafi þó minni áhrif á náttúruna en aðrir kostir. Samfélagslegur ávinningur fyrir Norðurþing og nærsveitir verði mikill.
„Um þetta snýst málið. Þú ert í raun og veru, öll orkuvinnsla og öll manngerð fyrirbæri hafa áhrif á náttúru og umhverfi og í rauninni þarf samfélagslegur ávinningur að trompa það rask sem verður. Og það er alltaf það sem tekist er á um.“
