Sjóklæðagerðin, sem framleiðir og selur vörur undir vörumerkinu 66°Norður, hefur samið við kínverska fatafyrirtækið HLA um stofnun samstarfsfélags. Það á að annast sölu og dreifingu á vörum 66°Norður í Kína.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Samkvæmt samningnum, sem var undirritaður í september, kaupir samstarfsfélagið vörubirgðir af Sjóklæðagerðinni. „Jafnframt hefur verið samið um sölu hugverkaréttinda sem tengjast sölu og dreifingu á vörum 66°Norður í Kína.“
Tap jókst milli ára
Gert er ráð fyrir að samstarfið bæti lausafjárstöðu Sjóklæðagerðarinnar verulega og styrki fjárhagsstöðu félagsins. Rekstrartekjur þess drógust saman um 8,8% milli áranna 2024 og 2025. Tap félagsins nam 849 milljónum króna árið 2025 en það hafði verið 444 milljónir árið áður.
„Afkoman endurspeglar meðal annars þann kostnað sem liggur að baki umfangsmikilli alþjóðlegri uppbyggingu á undanförnum árum samhliða krefjandi markaðsaðstæðum.
Uppbyggingin hefur verið fjármögnuð með eigin fé og lántökum og hafa stjórnendur nú lagt aukna áherslu á að bæta rekstrarafkomu og styrkja fjárhagsstöðu félagsins,“ segir í tilkynningunni.
Stefnt er að því að opna fyrstu verslunina í Kína á næsta ári.
