Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur breytt aðalnámskrá grunnskóla. Breytingin felur í sér að á yfirstandandi skólaári fái nemendur í 10. bekk einkunnir í tölustöfum í stað bókstafa.
„Með breytingunni eru skólar hvattir til að nota kvarðann 1–10 við námsmat á skólaárinu, svo sem fyrir einstök próf og verkefni,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að markmiðið sé að gera einkunnir skýrari, auka jafnræði milli skóla og veita bæði nemendum og foreldrum betri upplýsingar um stöðu náms og framfarir.
Við útskrift á að nota kvarðann 4–10. „Ekki er talið réttlætanlegt eða uppbyggilegt að gefa grunnskólabarni 1–3 í lokaeinkunn eftir heilan skólavetur.“
Hvað merkja einkunnirnar?
Einkunnir eiga að lýsa því hve vel nemandi hefur náð hæfni sem aðalnámskrá gerir ráð fyrir.
4: Nemandi hefur ekki náð hæfninni sem stefnt er að. Skólinn lýsir sérstaklega því sem nemandinn hefur náð tökum á.
5 og 6: Nemandi er á leið að því að ná hæfninni en þarf að taka undirbúningsáfanga í íslensku, stærðfræði og ensku fái viðkomandi nemandi 5 eða 6 í þeim greinum.
7: Nemandi hefur náð hæfninni sem stefnt er að.
8 og 9: Nemandi sýnir meiri dýpt, öryggi og sjálfstæði við að beita hæfninni.
10: Nemandi sýnir framúrskarandi hæfni og stöðuga frammistöðu. Nemandi vinnur af miklu öryggi og sjálfstæði og getur túlkað, metið og nýtt þekkingu sína við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. Ekki er gerð krafa um umframhæfni en þeirri hæfni sem gerð er krafa um í grunnskóla. Þá er ekki gerð krafa að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga á grunnskólagöngu sinni til að eiga möguleika að fá 10.
Samkvæmt tilkynningunni eiga skólar að ákveða vægi hæfniþátta fyrir lok janúar 2027. Nánari útfærslu námsmats á að birta í skólanámskrá fyrir vorið 2027.
