Í bréfi borgarstjóra kemur fram að á árunum 2022–2025 jókst rekstrarkostnaður Orkuveitunnar um 62%, ársverkum fjölgaði um 100 og laun og launatengd gjöld hækkuðu um næstum 40%. Ef þessir kostnaðarliðir hefðu þróast í takti við launavísitölu og vísitölu neysluverðs hefði rekstrarkostnaður í fyrra verið um 4,4 milljörðum króna lægri en raunin varð. Borgarstjóri benti á að ef þessi munur yrði óbreyttur næstu fimm árin – það er að segja ef ekkert breyttist – næmi hann samtals um 22 milljörðum.
Borgarstjóri bendir síðan á að hrein lántaka vegna framkvæmda Orkuveitunnar á næstu árum – sem alls kosta næstum 220 milljarða og eru einhverjar þær mestu í sögu fyrirtækisins – sé áætluð um 50 milljarðar króna.
Hún skorar síðan á Ara Edwald, stjórnarformann Orkuveitunnar, í samstarfi við forstjóra, að hefja undirbúning að hagræðingu innan samstæðunnar með það fyrir augum að fækka stöðugildum, gæta aðhalds í nýráðningum og lækka rekstrarkostnað svo draga megi úr lántökuþörf vegna fjárfestinganna.
Fjölgun vegna Carbfix, Ljósleiðarans og meira umfangs
Forstjóri Orkuveitunnar, Sævar Freyr Þráinsson, kom í Spegilinn til að ræða málið.
Sævar segir mikilvægt að hafa í huga að sveitarfélögin sem eiga Orkuveituna; Reykjavík, Akranes og Borgarbyggð, hafi verið í aðhaldsaðgerðum og það sé eðlilegt að þær nái einnig til sinna fyrirtækja. Það sé sömuleiðis mikilvægt að setja þetta í samhengi við að á árunum 2022-2025 hafi tekjur Orkuveitunnar aukist um 12,8 milljarða en gjöldin vaxið um 7 milljarða á sama tíma. Hluti af kostnaðaraukningu hafi verið vegna kaupa Ljósleiðarans á grunnneti Sýnar en stór hluti sé líka vegna fjölgunar hjá Carbfix sem hafi orðið til á tímabilinu. Þá hafi umfang rekstrarins farið vaxandi og undirbúa hafi þurft fjárfestingar og framkvæmdir. Um leið þurfi að horfa á reksturinn, m.a. fjölgun starfsfólks, með gagnrýnum hætti. „En við ætlum að halda áfram að hagræða þar sem það er skynsamlegt,“ segir Sævar.
Markmiðið til næstu sex ára sé að auka tekjur um 32 milljarða – úr 68 milljörðum í 100 milljarða – en gjöldin vaxi aðeins um 8 milljarða, eða upp í 36 milljarða.
Sævar segir að Orkuveitan hafi verið að hagræða, meðal annars í tengslum við bilunina hjá Norðuráli í fyrra. Þá sé hægt að auka umsvifin töluvert án þess að fjölga starfsfólki en athugað verði hvort hægt sé að fækka fólki, svo sem með því að draga úr nýráðningum. Hann býst þó ekki við uppsögnum, þótt slíkt sé ekki útilokað frekar en í öðrum rekstri. Fyrirtækið sé í opinberri eigu – og hafi sýnt ráðdeild í rekstri.
Í fyrradag var greint frá því að starfsmönnum Carbfix hefði verið fækkað um átta og voru fjórir aðrir færðir til í starfi.
Skuldar OR 6,6 milljarða en segir ávinninginn 15 milljarða
Carbfix, sem er dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, hefur verið rekið með tapi. Í fyrra nam tapið einum og hálfum milljarði. Eigið fé er neikvætt og félagið skuldar Orkuveitunni 6,6 milljarða.
Sævar bendir á að Carbix hafi orðið til í kringum tækni til að dæla koltvísýringi og brennisteinsvetni niður í jarðlög. Íbúar höfuðborgarsvæðisins kannast vel við að frá Hellisheiðarvirkjun lagði fnyk frá brennisteinsvetni sem Orkuveitunni var gert að fanga og farga. Vegna Carbfix-tækninnar hafi verið hægt að gera það með mun ódýrari hætti en ella. Þrátt fyrir að rekstur Carbix hafi ekki verið góður nemi ávinningur Orkuveitunnar, þegar allt er talið, um 15 milljörðum króna.
Áfram hafi þó verið tap á rekstrinum og nú hafi verið tekin ákvörðun um að breyta áherslum. Áður hafi verið ætlunin að taka við koltvísýringnum frá stórum iðnfyrirtækjum í Evrópu til að dæla niður í berglög hér og í þeim tilgangi átti að reisa Coda Terminal, niðurdælingarstöð, í Hafnarfirði. Þetta hafi ekki gengið vel og nú ætli Carbfix að vinna með iðnfyrirtækjum að því að dæla niður koltvísýringi þar sem iðnfyrirtækin eru með starfsemi og réttar aðstæður eru fyrir hendi.
Tækifærin séu mörg, meðal annars sé unnið með Elkem að því að fanga útblástur og dæla honum niður. Verið sé að skoða fleiri verkefni hér á landi en líka í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann er bjartsýnn á að reksturinn batni og hann býst við að fá alla fjárfestinguna til baka, þótt það geti tekið tíma.
Lán í óláni að ekki varð af Coda Terminal
Carbfix fékk á sínum tíma vilyrði fyrir 7 milljarða Evrópustyrk fyrir Coda Terminal. Nú er veruleg óvissa um hvort sá styrkur verði greiddur, enda engin niðurdælingarstöð í bígerð.
Áform um niðurdælingarstöð í Hafnarfirði mættu mikilli andstöðu íbúa og því má spyrja hvort ekki hafi verið lán í óláni að ekkert varð af uppbyggingunni, í ljósi markaðsaðstæðna fyrir starfsemi af þessum toga.
„Við vorum með viðskiptavinina klára að skrifa undir samninga og fjárfesta tilbúna og okkur vantaði í rauninni sveitarfélag til að vinna með okkur. Við mátum stöðuna þannig að það væri skynsamlegra að bakka og það má segja að það sé lán í óláni, eins og þú segir, að við séum þá á þessum stað í dag,“ segir Sævar.
Sá möguleiki, að flytja koltvísýring til niðurdælingar, muni verða að veruleika en það sé þó langt í þann áfanga.
Leiðrétting: Tekið var fram í útvarpspistli fréttarinnar að átta starfsmönnum Carbfix hefði verið sagt upp og að fjórir þeirra hefðu verið færðir til í starfi. Hið rétta er að átta var sagt upp og aðrir fjórir starfsmenn færðir til. Þannig höfðu breytingarnar áhrif á 12 starfsmenn Carbfix.
