Barði mann og stakk hann í hálsinn með blýanti

Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sakfelldi í dag rúmlega tvítugan mann fyrir líkamsárás. Hann réðst á mann í júlí 2024, sló hann með hnefahöggi í bakið og stakk hann í hálsinn með blýanti.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni hlaut punktsár á hálsi, mar á mjóbaki og tognaði á brjósthrygg. Sá starfaði í úrræði þar sem hann veitti árásarmanninum þjónustu. Árásin var gerð við heimili starfsmannsins.

Árásarmaðurinn játaði sök. Því þurfti ekki að taka afstöðu til sektar heldur aðeins til refsingar og bótagreiðslu.

Geðlæknir sagði áhöld um hvort maðurinn hefði verið sakhæfur þegar hann réðst á brotaþola. Geðlæknirinn sagði engan vafa leika á því að refsing gæti ekki borið árangur. Árásarmaðurinn býr í úrræði og nýtur þar þjónustu. Geðlæknirinn sagði mikilvægt að það breyttist ekki.

Dómari ákvað því að fresta ákvörðun um refsingu í fimm ár. Dómarinn sagði að þar sem maðurinn hefði verið sviptur lögræði næstu árin og byggi þegar í úrræði þyrfti ekki að kveða á um önnur skilyrði fyrir því að fresta því að kveða upp refsingu yfir manninum. Hún fellur niður haldi maðurinn almennt skilorð næstu fimm árin.