Guðmundur Jóhannsson tæknispekúlant segir hug sinn allan hjá kerfisstjóra Microsoft sem hafi eflaust bara verið að reyna að vinna vinnuna sína þegar allt fór í skrúfuna í gær. Það geti reynst erfitt að vinda ofan af svona löguðu í svo stóru kerfi.
„Microsoft tók sérstaklega fram að þetta væri ekki árás, ekki eitthvað sem tengist gervigreindarerindrekum eða einhverju svoleiðis,“ segir Guðmundur.
Guðmundur og Bára Hlynsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur voru gestir í Vikulokunum á Rás 2 í dag og ræddu tæknivandræði vikunnar.Alþjóðastjórnmálafræðingur segir bilun hjá Microsoft áminningu fyrir fyrirtæki og stofnanir um að vera með viðbragðsáætlanir fyrir ómissandi kerfi. Tæknispekúlant segir stafrænt fullveldi flókið en ekki endilega ómögulegt.
Víðtækar truflanir urðu í forritum Microsoft um heim allan í gær, enda fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sem reiða sig á kerfi Microsoft. Áhrif bilunarinnar vörðu í nærri sólarhring. Microsoft hefur ekki upplýst um hvað nákvæmlega fór úrskeiðis en segir bilunina stafa af kerfisuppfærslu.
Spurð hvort það sé óhjákvæmilegt að allt sé í lamasessi hérlendis fari eitthvað úrskeiðis í þessum kerfum segir Bára það alla vega áminningu fyrir fyrirtæki og stofnanir að vera með viðbragðsáætlanir fyrir ómissandi kerfi.Verðum við að setja öll eggin okkar í sömu körfuna? Erum við háð einum stórum risabirgja sem er kannski á vesturströnd eða austurströnd Bandaríkjanna? Það er ákveðin áhætta.
Hún bendir á að bilunin hafi til að mynda ekki haft víðtæk áhrif í Kína þar sem þeir hafi byggt upp sína eigin tækniinnviði sem séu óháðir Microsoft, þó svo að það sé ekki endilega rökrétt lausn fyrir Ísland.
Guðmundur tekur undir með Báru um að fyrirtæki og stofnanir geti nýtt lærdóm gærdagsins til að meta hvernig starfsmenn ætli að eiga í samskiptum eða vinna vinnuna sína komi svona lagað upp aftur. Stjórnvöld geti aftur á móti skoðað að byggja upp varakerfi óháð Microsoft.Varðandi stafrænt fullveldi þá er það ótrúlega flókið. Bæði Frakkar og Þjóðverjar hafa gert þetta í einhverjum mæli fyrir óhemju mikinn pening og hafa ekki náð stafrænu fullveldi ennþá. Þannig að það er flókið og snúið en það ætti kannski að vera auðveldara fyrir lítið land eins og okkur ef maður hugsar bara um hið opinbera.
