Fjármálaráðherra segir að fjárlagafrumvarpinu verði breytt svo að markmið um hallalaus fjárlög náist. Breytingarnar verða allar á útgjaldahlið frumvarpsins.
Í Peningamálum Seðlabankans í gær kom fram að breyttar forsendur á horfum efnahagsmála, til að mynda minni hagvöxtur en fyrri spá gerði ráð fyrir, þýddu 17 milljarða króna halla á ríkissjóði á næsta ári. Það er, eins og fjárlagafrumvarpið leit út þegar það var lagt fram. Það er nú í meðförum þingsins og kemur senn til annarrar umræðu en það þarf að samþykkja fyrir áramót.
Á peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun útskýrði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að spá bankans um 17 milljarða króna halla væri einfaldlega byggð á líkani hans og jafnvel þótt það yrði niðurstaðan þá væri aðhaldsstig ríkisfjármálanna umtalsvert.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að ráðuneyti hans hafi verið meðvitað um þessa þróun og sé þegar tilbúið með aðgerðir sem kynntar verða við upphaf annarrar umræðu. „Þetta eru margir smáir hlutir og það væri of langt mál að fara yfir hér, burtséð frá því að það sé eðlilegt að þeir séu fyrst kynntir fjárlaganefnd Alþingis.“
Daði Már segir að allar breytingarnar séu á útgjaldahliðinni. Með öðrum orðum, fjárveitingar verða skornar niður og Daði segir að niðurskurðurinn verði þvert á málaflokka. „Þó að 17 milljarðar hljómi eins og stór tala þá er hún ekki stór í samhengi við rekstur ríkisins sem er upp á 1700 milljarða.“
