Býður fleiri þingmenn „velkomna heim“

Formaður Sjálfstæðisflokksins fagnar því sem hún segir heimkomu Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Hún segist hafa boðið fleiri þingmenn velkomna heim og að hún hafi rætt við fleiri þingmenn ríkisstjórnarinnar, sem hún segir standa veikt.

Ingvar sat sinn fyrsta þingflokksfund með Sjálfstæðisflokknum í morgun eftir að hann tilkynnti úrsögn úr Viðreisn. Hann segist aldrei áður hafa verið viðloðinn Sjálfstæðisflokkinn en Viðreisn var stofnuð 2014 þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og fleiri Sjálfstæðismenn klufu sig úr flokknum vegna ágreinings um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir Ingvar hafa verið öflugan þingmann sem hafi unnið vel fyrir sitt kjördæmi.

„Og oft hefur hægri hjarta hans segið með okkur Sjálfstæðismönnum í mörgum málum,“ segir Guðrún.Formaður Sjálfstæðisflokksins segir hjarta Ingvars Þóroddssonar, nýs þingmanns flokksins eftir vistaskipti frá Viðreisn, oft hafa slegið með Sjálfstæðisflokknum. Hún segist hafa rætt við fleiri stjórnarþingmenn.

Guðrún segir vistaskipti Ingvars hafa átt sér einhvern aðdraganda, allt frá úrsögn Jóns Gnarr úr Viðreisn, en hlutirnir hafi gerst hratt síðustu klukkutíma áður en Ingvar tilkynnti þau.

Guðrún segir að þess vegna liggi ekkert fyrir um hlutverk Ingvars innan þingflokksins, svo sem með tilliti til nefndasetu.

„En þegar þú færð öflugan þingmann í hópinn eins og Ingvar Þóroddsson þá viltu auðvitað að hæfileikar hans og geta nýtist vel og það mun svo sannarlega gerast hjá okkur og við munum finna honum verðug verkefni,“ segir Guðrún.

Hún segir það alltaf áfall fyrir ríkisstjórnir að missa þingmenn. Nú hafi ríkisstjórnin misst þrjá og geti ekki treyst á stuðning þeirra í öllum málum. Þar vísar hún til Jóns Gnarr, og Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi þingmanns Flokks fólksins. Þeir eru utan þingflokka en styðja ríkisstjórnina.

Guðrún hefur átt samtöl við fleiri stjórnarþingmenn

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er orðinn jafnstór þingflokki Samfylkingarinnar. Guðrún segir Sjálfstæðisflokkinn langstærsta stjórnmálaafl landsins.

„Ég sagði á landsfundi á síðasta ári þegar ég var kjörin formaður flokksins að að ég vildi stækka flokkinn og ég vildi breikka hann og bjóða fyrrum félaga okkar velkomna heim og nú er Ingvar kominn heim og ég fagna því og býð fleiri velkomna heim,“ segir Guðrún.

Guðrún segist hafa átt samtöl við fleiri stjórnarþingmenn en hún vill ekki segja til um hverjir það eru eða stöðu viðræðnanna.

„Þetta eru bara þingmenn sem hafa nálgast mig að fyrra bragði og það er ýmislegt talað um hér á göngum Alþingis.“

Úr Viðreisn eða fleiri flokkum?

„Ég ætla ekki að tjá mig um það en það eru stjórnarþingmenn sem hafa verið hugsi síðustu vikur og mánuði.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.