Daði segir hjólhýsageymslu í bílskúrum Grindvíkinga fyrir neðan allar hellur

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra segir að hlustað verði á alla gagnrýni Grindvíkinga á fyrirkomulag um fyrirkomulag fasteigna þeirra sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti í vikunni.

Þórkatla keypti hátt í þúsund fasteignir í Grindavík eftir að bærinn var rýmdur vegna jarðhræringa fyrir þremur árum.Fjármálaráðherra segir að hlustað verði á sjónarmið þeirra Grindvíkinga sem treysta ekki fasteignafélaginu Þórkötlu. Það sé fyrir neðan allar hellur að starfsfólk félagsins hafi notað heimili fólksins til að geyma persónulegar eigur sínar.

Þórkatla keypti hátt í þúsund fasteignir í Grindavík eftir að bærinn var rýmdur vegna jarðhræringa fyrir þremur árum.

Félagið kynnti í vikunni endurkaupaáætlun fyrir íbúa á fundi þar sem þeim stendur til boða að kaupa eignirnar aftur á upprunalegu söluverði, leigja þær eða taka þær frá í rúmt ár.

Ríður mikið á að þetta takist vel

Þessi leið hugnast mörgum Grindvíkingum ekki og bæjarstjórnin í Grindavík lýsti yfir vantrausti á vinnubrögð Þórkötlu í gær og hvatti félagið til að endurskoða áætlanir sínar.

„Við hlustum auðvitað alltaf á þau sjónarmið sem koma fram og það er mjög mikilvægt að halda svona fundi og undirbúa þessi skref mjög vel. Það ríður mikið á að þetta takist vel,“ segir Daði.

Segir hollvinasamningana barn síns tíma

Hann efast um að svokallaðir hollvinasamningar við Þórkötlu verði framlengdir. Hollvinasamningar fólu í sér að fyrri eigendur fengu aðgang að húsum sínum eftir að Þórkatla keypti þau og heimild til að nota þau innan marka.

„Þeir eru á vissan hátt barn síns tíma,“ segir ráðherra. „Þetta kerfi þar sem við erum að horfa á núna er skref í átt að fastri búsetu.“

Flókið fyrir ríkið að verða leigusali

Meðal tillagna sem hafa komið upp í umræðunni síðustu daga er að Grindvíkingar fái að leigja fyrrum heimili sín á kostnaðarverði á meðan enn gæti frekari jarðhræringa verið að vænta.

Daði segir að það gæti verið snúið í framkvæmd. „Það er flókið fyrir ríkið að verða umfangsmikill leigusali en við erum opin fyrir því að ræða hugmyndir.“

Þarf að taka á framferði starfsmanna Þórkötlu

Í vikunni kom í ljós að starfsmenn Þórkötlu hefðu geymt hjólhýsi sín í bílskúr við íbúðahúsnæði í Grindavík. „Þetta er fyrir neðan allar hellur og á því verður að taka,“ svarar Daði spurður hvað honum finnist um þetta.

Hvernig verður tekið á því?

„Það verður stjórnenda Þórkötlu að gera það en þeir hafa verið afdráttarlausir líka.“