Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð

Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna við verðbólgu. Verðlagseftirlit ASÍ hefur þó mælt aukna tíðni verðlækkana í haust.

Hækkun dagvöruvísitölu ASÍ um 0,33% má fyrst og fremst rekja til verðhækkana á kjöti og mjólkurvörum samkvæmt tilkynningu. Verðlækkanir hafa hins vegar að mestu verið bundnar við innfluttar vörur.

Hægari verðhækkanir en fyrr á árinu

Í september tilkynntu fyrirtæki svo sem Hagar, Krónan og Nettó að þau ætluðu að lækka eða frysta verð á sumum vörum til að sporna gegn verðbólgu og verja forsendur kjarasamninga.

Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ lækkaði um þriðjungur vara í Bónus á tímabilinu ágúst til nóvember. Í öðrum verslunum var hlutfallið þó lægra og „meira um mældar verðhækkanir heldur en verðlækkanir.“

Þrátt fyrir að vísitalan hafi hækkað gerir hún það hægar en hún gerði fyrr á árinu. Hún hækkaði að jafnaði um 0,66% á mánuði á fyrsta ársfjórðungi.

„Á tímabilinu hækkaði dagvöruvísitalan mest í Bónus, um 0,49% samanborið við 0,4% í Krónunni. Verðlag í Prís og Nettó stóð að mestu í stað, eða 0,06% hækkun í Prís og 0,02% í Nettó,“ segir í tilkynningu.

Í tilkynningu frá ASÍ segir að hækkun á kjötverði, einkum nautakjöti, vegi þungt við hækkun vísitölunnar. Þá hækkuðu mjólkurvörur, fiskur og grænmeti einnig.

Hæst hlutfall verðlækkana var í Bónus. Þar lækkuðu 31,4% vara í verði. Þar hækkuðu þó hlutfallslega flestar vörur líka, eða 22,6%.

Verð breyttust minnst hjá Prís. Þar var hlutfall lækkana 10,9% og hækkana 18,7%.

„Krónan lækkaði verð á 16,1% vara en óbreytt verð var á um 65,4% vara en verð hækkaði á 18,6% vara. Nettó lækkaði verð á 13,8% vara en hækkaði verð á 20,1% vara, óbreytt verð var á 66,1% vara.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.