Fyrirhugað laxeldi Kaldvíkur í Seyðisfirði er umdeilt og Samtökin Vá berjast gegn eldinu. Segja má að þau andi kröftuglega niður um hálsmálið á Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Hún á enn eftir að veita byggingarleyfi fyrir sjókvíunum.
Kaldvík þurfti að hnika til akkerum
Sumarið 2025 þurfti Kaldvík að draga báðar byggingarleyfisumsóknir sínar til baka þegar í ljós kom eftir mælingu á stórstraumsfjöruborði og nákvæma hnitsetningu að akkerisfestingar voru of nálægt landi. Þær væru innan netlaga sem er svæði þar sem landeigendur hafa umráð og að auki þyrfti þá sérstakt leyfi frá byggingarfulltrúa. Nýjar umsóknir voru sendar inn þar sem akkerispunktar voru færðir út fyrir netlögin.
Deila um hvort kvíar búi til veiðibann innan netlaga
Eigendur fimm sjávarjarða, Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða, hafa nú fengið aðild að málinu og síðastliðinn miðvikudag sendu þeir stofnuninni andmæli sín. Þeir telja að færa þurfi fyrirhuguð kvíaból lengra frá landi. Í kringum það er 150 metra veiðibannsvæði og má ekki skaga inn fyrir netlög landeigenda. Þar eiga þeir einkarétt á veiðum. Um er að ræða jarðirnar Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og
Tekist er á um hvar veiðibannsvæðið liggur. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mælir 150 metrana frá ystu fljótandi punktum á yfirborði sjávar en landeigendur telja að miða eigi við enn ytri punkta, sem eru akkerisfestingar á botninum, enda teljist þær hluti mannvirkisins.
Í andmælabréfi landeigenda er fullyrt að það hafi verið á reiki hjá HMS við hvort skuli miða. Yrði það niðurstaðan þyrfti að færa eldið fjær landi og nær miðju fjarðar. Þá færi plássið undir eldið að hverfa því nær allur fjörðurinn er helgunarsvæði FARICE-sæstrengsins sem liggur í honum miðjum.
Samkvæmt upplýsingum frá HMS telur stofnunin hins vegar enn að miða eigi veiðibannið við jaðar eldissvæðis sem sé ofan sjávar. Þá yrði veiðibannssvæði ekki til vandræða. Það sé í samræmi við reglugerð um fiskeldi og túlkun annarra stofnana á reglugerðinni.
Landeigendur benda á fleiri annmarka
Landeigendur benda líka fleiri atriði. Samþykki hafnarstjórnar þurfi að liggja fyrir enda yrði eldið innan skilgreinds hafnarsvæðis eins og fram komi í umsögn Múlaþings. Einnig benda þeir á að innra eldissvæðið sé of nálægt ósum Fjarðarár, fjarlægð þurfi samkvæmt lögum að vera 5 kílómetrar en sé aðeins 4,6. Að því leyti sé strandsvæðaskipulagið gallað og það eigi að duga til að HMS hafni byggingarleyfisumsókn.
Þá sé ofanflóðamat Veðurstofunnar takmarkað. Hvorki sé metin áhætta fyrir fóðurpramma þar sem starfsmenn yrðu við störf né hætta á slysasleppingum. Ofanflóð gætu sett af stað flóðbylgju sem sé annars eðlis en haföldur sem miðað sé við í útreikningum á því hvað eldisbúnaðurinn þoli. Akkeri yrðu staðsett innan B-hættusvæðis.
Þá þurfi að endurskoða umhverfismat fyrir eldisáformin þar sem staðsetning kvía hefur breyst. Landeigendur og samtökin Vá hafa þessu til viðbótar staðið að kærum á rekstrar- og starfsleyfum.
Andstæðingar laxeldis í Seyðisfirði sniðgengu kynningarfund Kaldvíkur sem haldinn var á Seyðisfirði í gær. Fjallað var um fundinn í kvöldfréttum sjónvarps í gær.
Baráttan gegn laxeldi í Seyðisfirði er nú háð inni á borði hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Tekist er á um hvort eldið sé öruggt og hvort það rúmist í firðinum. Landeigendur fimm sjávarjarða leggjast gegn eldinu.
