Fjarðarkaup hafa verið í eigu sömu fjölskyldunnar í meira en hálfa öld. Nú hefur fjölskyldan samþykkt að selja verslunina Samkaupum en það er þó háð því að Samkeppniseftirlitið samþykki kaupin.
„Við erum fjögur systkinin sem eigum Fjarðarkaup og við erum farin að eldast. Ég er yngstur af okkur fjórum þannig að okkur fannst þetta bara vera góður tímapunktur til að selja,“ segir Gísli Sigurbergsson, einn eigenda Fjarðarkaupa.
Viðskiptavinir verslunarinnar eru hræddir um að búðin missi sérstöðu sína í höndum annarra eigenda. „Ef þetta fólk hefur bissnessvit þá heldur það í góða kjarnann,“ segir Ingibjörg Ragnarsdóttir viðskiptavinur.
„Þeir eru búnir að gefa það út að þeir ætli að læra eitthvað af okkur og reyna að halda þessu sambandi við ykkur,“ segir Gísli.
