Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, kveðst ekki hafa farið í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt. Það hefur blásið um Viðreisn, einn stjórnarflokkanna, síðustu vikur. Tveir þingmenn hafa kvatt þingflokkinn og annar þeirra gengið í Sjálfstæðisflokkinn. Þeir hafa báðir gagnrýnt flokksforystuna.
Þorgerður segir að þrátt fyrir þetta standi ríkisstjórnin sterkum fótum. Hún var gestur í Kastljósi kvöldsins.
„Ríkisstjórnin er að vanda sig, hún stendur mjög sterk, þetta er samhent ríkisstjórn, þetta er verkstjórn.“
Þorgerður segir að að mörgu leyti sé það erfiðara að vera þingmaður í stjórnarmeirihluta en þingmaður í stjórnarandstöðu; þingmenn í meirihluta verði að fylgja eftir málefnum ríkisstjórnarinnar.
„Það er það sem þessir flokkar eiga að vera að gera, þingflokkur Viðreisnar er núna algjörlega samhentur.“
Aðspurð út í brotthvarf Ingvars Þóroddssonar úr flokknum í þessu samhengi segir Þorgerður hann enn vera ungan og hugsanagjarnan, hún vilji þó þakka honum fyrir stuðning síðustu ára.
„Ég vil þakka honum sérstaklega fyrir að hafa staðið vel með Viðreisn í leiðréttingu veiðigjalda. Að þjóðin hafi fengið sinn hlut í sameiginlegri auðlind og það að hafa komið þjóðaratkvæðagreiðslunni á og að vera mikill Evrópusinni. Og ég vona að hann styðji bókun 35.“
Þjóðin ekki að segja bless við Evrópsku fjölskylduna
Í ágúst komst þjóðin að þeirri niðurstöðu ekki ætti að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þorgerður segir að með því hafi þjóðin ekki verið að segja bless við Evrópsku fjölskylduna.
„Hún var ekki að gera það. Það er alveg skýrt að hún vill byggja á EES-samningnum.“
Þorgerður segir að margt hafi unnist á meðan mikil áhersla hafi verið lögð á að efla tengsl við bæði Asíuríki og Bandaríkin.
„Við áttum mjög góða heimsókn frá Bandaríkjunum með Rubio þar sem við erum að styrkja tengslin líka en við þurfum að gera það áfram við Evrópu.“
Greiðasti markaður Íslands er Evrópa. Þorgerður bendir á að um 70% af öllum útflutningi fyrirtækja á Íslandi sé til Evrópu og því verði að halda áfram að vinna að því að efla samstarf milli Íslands og Evrópu.
„Við verðum að halda áfram. Þetta verður flóknara, okkar leið, þetta mikla almannahagsmunamál að okkar mati, var að fá að sjá samning og lækka vaxtabyrði ríkissjóðs um 150 milljarða niður í kannski 70.“
Þorgerður segir að nú þurfi að leita annarra leiða, ekki megi missa sjónar af þessu marki ríkisstjórnarinnar að ná tökum á efnahag landsins, markmið ríkisstjórnarinnar sé skýrt, að ná niður verðbólgu í landinu.
Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni hér í spilaranum fyrir neðan.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina standa sterkum fótum þrátt fyrir brotthvarf tveggja þingmanna úr þingflokki Viðreisnar á stuttum tíma. Hún segir flokk Viðreisnar samheldinn sem og ríkisstjórnina.
