Í almannavarnabæklingi stjórnvalda er gátlisti yfir þær nauðsynjar sem heimilið þarf til að komast af í að minnsta kosti þrjá daga. Til dæmis vatn og matur, peningar, lyf, hreinlætisvörur, verkfæri, eldunartæki, vasaljós og útvarp.
Vegfarendur sem fréttastofa ræddi við töldu sig nokkuð vel setta: „Ég hugsa að ég eigi ekki allt. En næstum því,“ sagði Nanna Norðfjörð.
Grétar Björnsson sagðist að minnsta kosti eiga vatn. „En það mætti alveg fylla á gaskútinn sko.“
Rúnar Sigurður Birgisson fagnaði útkomu bæklingsins: „Ég man þegar símaskráin kom út, þá voru allar þessar upplýsingar þar. Nú höfum við ekki lengur aðgang að þessum upplýsingum og þess vegna fagna ég þessu framtaki.“
Izabela Kinga Nieradko taldi sig nokkuð viðbúna, ef á reyndi. „En mér finnst að við hér á Íslandi séum örugg.“
