„Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu“

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnar því að ekki hafi verið greitt fyrir hlut hans í strandveiðiútgerðinni Sleppu hf. Hann segir að sölunni á hlutnum hafi verið rift vegna þess að útgerðin gekk illa hjá kaupanda.

„Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu,“ segir hann.

Morgunblaðið greindi frá því í dag að kaupum á 50% hlut Sigurjóns og 1% hlut eiginkonu hans í Sleppu hefði verið rift í mars. Í kaupsamningi sem blaðið birti er kaupverðið 255 þúsund krónur. Blaðið fullyrðir að kaupandinn hafi ekki greitt krónu fyrir hlutinn.

Sigurjón segir það af og frá. Kaupandinn, sem er dóttir vinar hans, segir hann að hafi greitt hlutafé í skuldsettu félagi.

Átti að greiða skuldina með innkomu

Sigurjón sagði í fyrra að kaupverð hlutarins í Sleppu hefði verið um 18 milljónir. Hann stendur enn við það. Upphæðina í kaupsamningnum megi rekja til skulda félagsins.

„Hugmyndin var að sú skuld sem félagið hafði við mig og eiginkonu mína yrði greidd með innkomu, sem ekki varð. Þannig að báturinn fór nánast ekkert á sjó árið 2025, þannig að kaupin gengu til baka. Svona er þetta. Það er ekkert flóknara.“

Báturinn bilaði og var viðgerðar þurfi. Sigurjón segir að tekjurnar í fyrra hafi ekki dugað fyrir viðgerðum. Útgerðinni var því sjálfhætt.

Gagnrýnir framsetningu Morgunblaðsins

Hann er gagnrýninn á Morgunblaðið sem hann segir ekki hafa haft samband við sig við vinnslu fréttarinnar.

„Þetta er svolítið furðuleg framsetning í Morgunblaðinu og er kannski engin tilviljun þegar á í hlut þingmaður Flokks fólksins. Ég hefði talið lágmark allavega að setja sig í samband og reyna að fá skýringar sem liggja ljósar fyrir.“

Sigurjón segist ekki sjá glæpinn í því að reyna að aðstoða ungt fólk við að taka þátt í útgerð.

„Það er ekkert í þessu máli.“

Sigurjón er sem fyrr segir þingmaður. Honum þykir það ekki hafa áhrif á hæfi hans að hann eigi stóran hlut í útgerðarfélagi. „Öllum eru ljósir mínir hagsmunir og mín afstaða til mála. […] Aðalmálið er að hagsmunir þingmanna séu ljósir og það er í þessu tilviki.“