Allir þrír mennirnir sem Íris Helga er ásökuð um að hafa stundað umsáturseinelti gegn segja hana hafa valdið sér miklum sálrænum skaða. Þá sögðu þeir allir að hún væri enn að áreita þá.
Allir þrír mennirnir gáfu skýrslu við aðalmeðferð málsins í dag. Fjallað er um skýrslu fyrsta mannsins í fréttinni hér fyrir neðan. Þá gáfu dætur tveggja þeirra skýrslu og þrír fjölskyldumeðlimir eins þeirra.
Heyrði snemma sögur um Írisi
Annar maðurinn til að gefa skýrslu í dag er maðurinn sem birt var fölsk dánartilkynning um í Morgunblaðinu í apríl og heitir Sölvi Guðmundsson. Sölvi segist gruna Írisi Helgu um að hafa birt dánartilkynninguna en sú birting er ekki til umfjöllunar í þessu máli.
Sölvi segir að samband sitt og Írisar hafi staðið í um eitt ár, frá því í mars 2023 þangað til í mars 2024. Þau hafi ekki búið saman á meðan á sambandi þeirra stóð en hann hafi þó verið mikið á heimili Írisar, sérstaklega um helgar.
Þegar líða tók á sambandið hafi hann farið að heyra sögur um Írisi Helgu og fyrri mál hennar, þá sérstaklega frá manni sem hún var áður með í sambandi árin 2021 til 2022 og er einnig brotaþoli í málinu. Hann hefur ekki stigið fram í fjölmiðlum og verður því nafns hans ekki getið.
Sölvi segir að hann hafi fengið upplýsingar um að Íris Helga væri ekki fórnarlamb í sínu máli. Því hafi hann byrjað að spyrja hana spurninga en í mars 2023 hafi Íris Helga hætt með honum. Hann hafi þó heyrt frá ýmsum sögum um hegðun Írisar Helgu en vildi ekki láta þess getið hvaðan hann hefði heyrt þær. Það hefði þó ekki verið frá fyrri brotaþola í málinu.
Sakaður um barnagirnd
Eftir að sambandi þeirra lauk hafi undarlegir hlutir byrjað að gerast. Til dæmis hafi hann og dóttir hans farið í frí og eftir að þau komu heim hafi verið búið að maka sultu á heimili þeirra. Svo hafi ásakanir byrjað að birtast á samfélagsmiðlum.
Þær fólu meðal annars í sér að Sölvi væri haldinn barnagirnd og voru birtar af aðgangi sem nefndist Barnaperrinn á Breiðdalsvík á Tik Tok.
Einnig voru tilkynningar sendar til barnaverndar vegna mannsins
Sölvi sagði að hann væri í dag atvinnulaus og sagði að á tveimur stöðum þar sem hann sótti um vinnu hefði verið ákveðið að ráða hann ekki vegna tengsla sinna við þetta mál.
Stutt kynni en afdrifarík
Þriðji maðurinn sem gaf skýrslu í dag heitir Garpur Ingason Elísabetarson og steig fram í viðtali við Vísi í mars 2025 þar sem hann lýsti reynslu sinni af umsáturseinelti Írisar Helgu.
Garpur sagði að hann og Íris Helga hefðu kynnst í lok mars 2024 á Instagram. Þau hefðu spjallað saman í gegnum einkaskilaboð og lýsti Garpur Írisi Helgu sem skemmtilegri við fyrstu kynni.
Sambandið hafi ekki verið langt en þau hafi hist að minnsta kosti einu sinni í kringum 10. eða 11. apríl 2024.
Þann 20. apríl hafi hann svo byrjað að fá skilaboð frá falsaðgöngum á Facebook. Garpur segir að skilaboðin hafi augljóslega verið skrifuð af fólki sem ekki sé raunverulega til. Þar var hann sakaður um að hafa farið illa með aðra manneskju. Hann sagðist ekki hafa tekið þessu alvarlega til að byrja með.
Vinkona tengir skilaboðin við Írisi Helgu
Hins vegar hafi skrýtin skilaboð haldið áfram að berast á Instagram og Facebook og í framhaldi af því hafi hann ákveðið að setja inn færslu á sinn eigin Instagram-reikning til að útskýra málið. Þá fékk hann einnig upplýsingar um að annar maður hafi verið að lenda í sömu aðstæðum vegna sömu fölsku aðganga á samfélagsmiðlum.
Þegar Garpur vann svo við að lýsa bakgarðshlaupi fyrir Stöð 2 hafi annað atvik átt sér stað þegar starfsmaður hafi komið inn með poka merktan honum. Hann hafi verið frá Írisi og í pokanum hafi verið heimabakað bakkelsi. Garpur segir að hann hafi ekki skilið þetta og þetta hafi verið óþægilegt.
Á mánudeginum eftir þetta hafi vinkona hans tjáð honum að hún teldi sig vita hvaðan undarlegu skilaboðin væru að berast og spurt hvort Garpur þekkti Írisi Helgu.
Honum hafi þá verið mjög brugðið og hann hafi haft samband við manninn sem hafði einnig verið að lenda í sömu skilaboðum og spurt hvort hann þekki Írisi Helgu. Í framhaldi af því hafi hann heyrt af málum hinna mannanna og orðið hræddur. Eftir það sagðist Garpur hafa sett upp öryggismyndavél heima hjá sér.
Garpur segist hafa á þessum tíma leitað í Bjarkarhlíð og fengið þar ráð frá lögreglukonu. Eftir það hafi hann fengið símtal frá vinkonu sem tjáði honum að í færslu á Facebook á stefnumótasíðu væri verið að lýsa kynferðisofbeldi tveggja manna. Lýsingarnar eigi við Garp og hinn manninn sem hann ræddi við. Eftir þetta fær hann fregnir af því að nemendur í skóla dóttur hans hafi rætt um hann sem eiginmann Írisar Helgu.
Í kjölfarið á því pantaði Garpur kærumóttöku hjá lögreglu. Lögregla ráðlagði honum þó að kæra ekki. „Þetta verður langt og leiðinlegt og maður vill ekki vera að standa í svona,“ sagði Garpur„Stundum er friður frá þessu og stundum alls ekki,“
Stakar færslur birtist hér og þar sem lýsi því að hann sé ofbeldismaður. Yfirmaður á Stöð 2 segir að búið sé að senda póst á opið netfang þar sem varað er við honum sem ofbeldismanni. Eftir þetta hafi myndir byrjað að birtast á samfélagsmiðlum þar sem Garpur er sagður ofbeldismaður.
Garpur segist þá hafa sent skilaboð á Írisi og beðið hana að hætta og sagt að ef áreitið hætti ekki myndi hann leita til lögreglu. Ekkert svar barst við skilaboðunum. Þá hafi áreitið byrjað fyrir alvöru, ógeðfelld skilaboð um hann sem einnig voru send á dóttur hans. Eftir það kærði Garpur málið til lögreglu.
„Stundum er friður frá þessu og stundum alls ekki,“ sagði Garpur í dag sem sagðist einnig fullviss um að Íris hefði staðið á bak við eineltið allan tímann. Hann hefði ekki verið í deilum við aðra á þessum tíma.
Einnig segir hann að birtar hafi verið færslur um dóttur sína sem hann sagði hafa verið mjög ógeðfelldar. Einnig hafi reikningar á samfélagsmiðlum verið í samskiptum við vinkonur dóttur hans.
Hann segist hafa kynnst kvíða í fyrsta skipti á ævi sinni í kringum málið og hafi sofnað og vaknað með kvíða undanfarin 2 ár.
„Það er rosalega óþægilegt að það sé verið að dreifa einhverju svona um mann,“ sagði Garpur. Aðspurður um áhrif á dóttur sína segir hann þau hafa verið hræðileg.
„Ég væri bara rosalega mikið til í að þetta myndi hætta og ég þyrfti ekki að hugsa um þetta aftur,“ sagði Garpur.
Velti upp hvort fjölmiðlar ættu að bera vitni
Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Garps, vakti athygli á því við aðalmeðferðina í dag að einn aðgangur sem notaður var til að dreifa níð um Garp hafi birt bein samskipti milli hans og Írisar Helgu.
Sá aðgangur hafi verið stofnaður á TikTok og hafi samskiptin sem fóru fram þeirra á milli verið birt sem skjáskot.
Þetta sagði hann athyglisvert þar sem eina fólkið sem hefði aðgang að þeim samskiptum sem voru birt væru Garpur og Íris Helga. Þetta væri því til sönnunar að Íris Helga væri að baki aðganginum en hún er sökuð um að hafa stofnað fjöldamarga slíka aðganga til þess að áreita brotaþola. Hún hefur neitað því.
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar Helgu, sagði þó að samskiptin hefðu verið send á fjölmiðla í aðdraganda málsins. Það er á hlaðvarp þar sem Íris Helga lýsti reynslu sinni og svo annan blaðamann. Hún velti því upp hvort mögulega þyrfti að kalla blaðamennina inn til þess að bera vitni. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun varðandi það.
