Ekki hægt að hringja í 112

Ekki er hægt að hringja í neyðarnúmerið 112 sem stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hægt er að hafa samband við varanúmer Neyðarlínunnar 5990112 meðan á viðgerð stendur.

„Við vitum ekki í augnablikinu hvernig á þessu stendur en teljum að um bilun sé að ræða,“ segir Jón Svanberg, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.

Unnið sé að viðgerðum og að landsmenn verði upplýstir um breytingar um leið og þær verða.

Fréttin verður uppfærð.