„Ekki vel lukkuð útgerðarsaga“ hjá Sigurjóni og kaupanda

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir að kaupverð á hlut sínum í útgerðarfélaginu Sleppu hafi verið lægra en hann hélt fram í fjölmiðlum vegna skuldsetningar félagsins. „Hún var að kaupa skuldsett félag,“ segir hann.

Morgunblaðið greindi frá því í dag að Sigurjón og eiginkona hans hefðu rift kaupsamningi við konu sem átti að eignast 51% hlut í útgerðarfélaginu Sleppu. Í fréttinni var birt mynd af kaupsamningnum og þar kemur fram að konan hafi greitt 255 þúsund krónur fyrir hlutinn.

Það er talsvert minna en Sigurjón hélt fram í fyrra. Hann sagði við fréttastofu að konan hefði keypt hlutinn á um 18 milljónir króna.

Sigurjón segir að útgerðin hafi ekki gengið sem skyldi hjá konunni. „Báturinn var bilaður og eitt og annað sem þurfti að lagfæra,“ segir hann. Gjöldin hafi verið mun hærri en tekjurnar og konan aðeins farið þrjá róðra.

„Því miður var þetta kannski ekki vel lukkuð útgerðarsaga, hvorki hjá mér eða henni. Ég á pappíra um hvernig þetta var gert.“

Inntur eftir því hvort fyrirkomulag sölunnar hafi verið til málamynda segir Sigurjón:

„Þetta allavega gekk ekki upp og þetta var allt gert með góðum hug þannig að hún gæti eignast bátinn.“