Eldur í vinnuskúr á byggingarsvæði

Dælubíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.RÚV / Ragnar Visage

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eld í tveimur vinnuskúrum á byggingarsvæði í Hafnarfirði kl. 23:48 í gærkvöld.

Guðjón Ingason, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að tveir dælubílar hafi verið sendir á vettvang. Það tók slökkvilið smá tíma að komast inn á svæðið sem er afgirt en slökkvistarf er hafið og unnið er að því að slökkva eldinn.

Fréttin verður uppfærð.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.