Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða

Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða í Reykjavík í dag. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eldinn klukkan 12:40. Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir töluverðan reyk hafa borist frá húsbílnum og að eldur hafi verið inni í honum.

Enginn var í bílnum þegar eldurinn kom upp og enginn slasaðist. Slökkvistarf tók stuttan tíma. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar eldsupptök. Hjólhýsabyggð við Sævarhöfða. Myndin var tekin í september 2026.RÚV / Ragnar Visage

Comments

Leave a Comment