Lítið hefur breyst síðan Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir ári síðan að mati ÖBÍ réttindasamtaka. Samningurinn kveður á um að fatlað fólk skuli hafa jafnan aðgang að öllum sviðum samfélagsins.
„Við finnum ekkert sérstaklega fyrir því að eitthvað hafi breyst þannig séð, þannig að baráttan okkar heldur alveg áfram,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ.
Alma segir að samtökin hefðu viljað sjá frekari breytingar.
„Við vitum náttúrulega að það tekur allt tíma og svoleiðis, en já við hefðum kannski viljað sjá þau sem fara með framkvæmdina – að þau væru meðvitaðri um hvað felst í þessu,“ segir Alma.
Bakslag í þjónustu sveitarfélaga
„Eins og varðandi þjónustu sem er á forræði sveitarfélaganna, hún hefur ekkert breyst. Ef eitthvað er þá er frekar svona ákveðið bakslag í þeim efnum. Þannig að maður hefði vonast til þess að sveitarfélög væru meðvitaðri um það sem þeim bæri að gera. En við finnum þetta líka á öðrum vettvangi eins og hjá undirstofnunum hjá framkvæmdavaldinu. Það er kannski ekki alveg verið að virða þetta sem þarna kemur fram.“
Alma segir baráttumál Öryrkjabandalagsins lítið hafa breyst.
„Þau breytast eiginlega ekki. Ef eitthvað er þá kannski bætir í. Það eru aðrar áherslur, sum mál sem við höfum verið að berjast fyrir, eins og tengt almannatryggingakerfinu, það er svona í ákveðnum farvegi sem gefur okkur færi á að setja önnur mál á oddinn,“ segir Alma og nefnir þar meðal jafnt aðgengi að hjálpartækjum, og réttindi fatlaðra barna.
„Það er mjög breiður hópur sem hefur setið á hakanum. Þannig við ætlum að gera svolítinn skurk í því.“
Öryrkjabandalagið stendur fyrir málþingi í tilefni þess að ár er liðið frá lögfestingu samningsins. Streymi má nálgast hér.
