Fékk upplýsingar um stöðu turnsins sem bregðast þurfti við

Vonir standa enn til að Radisson Red hótelið við Skúlagötu verði klárað og það opnað gestum. Arion banki segir að bankinn hafi þurft að bregðast við í ljósi upplýsinga sem fram hafi komið á síðustu dögum.

Líkt og fréttastofa greindi fyrst frá í gær voru allar framkvæmdir við hótelturninn á Skúlagötu stöðvaðar á mánudaginn og verktakar beðnir um að yfirgefa byggingarstað þar sem búið var að loka fyrir frekari fjármögnun á framkvæmdum. Arion banki er aðalkröfuhafi og þar á bæ er skoðað hvernig hægt er að bjarga sem mestum verðmætum. Arion banki segir í stuttu svari við fyrirspurn fréttastofu að á síðustu dögum hafi komið fram upplýsingar varðandi framkvæmd og stöðu verkefnisins sem bankinn hafi þurft að bregðast við. Málið sé í viðeigandi farvegi og unnið sé að lausn þess.

Miklir fjármunir eru undir en Viðskiptablaðið greindi frá því að 18 og hálfur milljarður króna hefði hvílt á byggingunni og er Arion banki veðhafi allra fimm tryggingabréfanna. Líklegt er að bankinn leiti að fjárfestum til að klára verkið þannig að hótelið, sem starfa átti undir merkjum Radisson Red, verði klárað og það opnað gestum. Radisson-keðjan hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu um málið.

Það getur reynst tímafrekt ferli og því alls óvíst hvenær það verður. Það setur ferðaskrifstofur í vanda sem þegar voru byrjaðar að bóka gesti á hótelið, jafnvel allt fram til ársins 2028. Viðmælendur fréttastofu sögðu að síðustu mánuði hefðu ferðaskrifstofur þurft að færa ferðamenn á önnur hótel vegna þeirra tafa sem þegar höfðu orðið á framkvæmdinni. Nú, þegar ljóst er að hótelið er ekki að fara að opna í bráð, þurfi að færa aðra gesti.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.