Dregið verður úr þjónustu Strætó á nokkrum leiðum þann 1. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins.
Meðal breytinga sem taka gildi 1. desember er að síðustu ferðir á kvöldin verða felldar niður á um helmingi leiða, bæði á virkum dögum og um helgar.
Tímabil 10 mínútna tíðni verður stytt á leiðum 3, 5 og 12 og tíðni verður dregin saman úr 15 mínútum í 30 á leið 15 milli annatíma og á leið 19 á annatíma. Akstri um helgar verður hætt á leið 36 og á laugardögum á leið 17. Ein morgunferð kl. 6:33 verður felld niður frá Tungubökkum á leið 7.
Einnig verða gerðar sérstakar breytingar á þjónustu á ákveðnum tímabilum, svo sem um jól og sumar. Milli 21. desember og 5. janúar aka leiðir 3,5 og 12 á 15 mínútna fresti á annatíma í stað 10 mínútna. Leiðir 21, 24 og 31 aka á 30 mínútna fresti á annatíma í stað 15. Þá mun leið 8, Háskólaleiðin, aka á 30 mínútna fresti allan daginn. Svipað fyrirkomulag er fyrirhugað um sumar framvegis, segir í tilkynningunni.
Í tilkynningunni segir að þjónustuskerðingin byggi meðal annars á mælingum á notkun Strætó. Við útfærslu breytinganna hafi verið lögð áhersla á að þær hefðu sem minnst áhrif á ferðir farþega. Reynt hafi verið að haga breytingum þannig að þar sem þjónusta verði lögð niður sé hægt að komast leiðar sinnar með öðrum leiðum. Þá haldist fjölmennustu leiðirnar, leiðir 1 og 6, óbreyttar.
