Flugvirkjar og Icelandair undirrita kjarasamning

Icelandair ehf. og Flugvirkjafélag Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning á milli félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 1. september 2028. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair sem send var til kauphallar.

FVFÍ mun nú leggja samninginn fyrir félagsmenn sína til atkvæðagreiðslu en gert er ráð fyrir að niðurstaða hennar muni liggja fyrir þann 1. desember.

Skrifað var undir innanhústillögu ríkissáttasemjara samkvæmt Óskari Einarssyni, formanni Flugvirkjafélags Íslands.

„Það var komið að þeim tímapunkti að það þyrfti að skrifa undir og svo setja þetta í hendur félagsmanna,“ segir Óskar.

Viðræður Flugvirkjafélags Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Icelandair um nýjan kjarasamning hafa staðið yfir síðan í nóvember 2025.

Flugvirkjar fóru í verkfall þann 23. september sem hófst á miðnætti en því var aflýst sama dag.