Frábiður sér ásakanir um trúnaðarbrest

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis segist ekki hafa komið upplýsingum um vistaskipti Ingvars Þóroddssonar á framfæri. Þetta staðfestir hún í svari til fréttastofu og segir ásakanir um slíkt vera úr lausu lofti gripnar.

Ingvar Þóroddsson, sem í gær gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn úr Viðreisn, sakaði Þórunni fyrr í dag um trúnaðarbrest. Fréttir af vistaskiptum hans hafi farið að kvisast út eftir að hann tilkynnti henni um ákvörðun sína.

Þetta tilkynnti Ingvar við upphaf þingfundar þar sem hann ræddi málið. Honum sárnaði að hafa ekki fengið tækifæri til að greina fólki frá vistaskiptum sínum í eigin persónu.

Þórunn segist hafa fundað með Ingvari eftir að hann tók til máls á þingfundi í dag. Engin eftirmál verði vegna málsins.