Frostið fer minnkandi

Í dag má búast við frekar hægum vindi víðast hvar en aðeins blæs suðvestan- og vestanlands. Í kvöld bætir í vind. Hiti verður um og aðeins yfir frostmarki sunnan- og vestanlands og í öðrum landshlutum fer frostið minnkandi.

Veðurspáin er svohljóðandi:

Suðaustan 5-13 m/s suðvestan- og vestanlands, annars hægari vindur. Stöku skúrir eða él, en þurrt að mestu á Norðurlandi. Hiti víða 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands og minnkandi frost í öðrum landshlutum. Bætir í vind í kvöld.

Suðaustan 8-13 á morgun, en 10-18 suðvestantil. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Úrkomumeira og hvessir annað kvöld