Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í fyrradag með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing. Hún var í opinberum erindagjörðum í Kína í vikunni.
Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að Yi hafi verið heiðursgestur í móttöku í sendiráði Íslands þar sem 55 ára stjórnmálasambandi ríkjanna var fagnað.
Þorgerður segir að fundur þeirra Yi hafi verið einstaklega góður og hreinskiptinn.
„Fyrst og síðast var mikill vilji af beggja hálfu til þess að efla enn frekar tengslin, ekki síst á sviði viðskipta, menningar og lista,“ sagði Þorgerður í útvarpsfréttum í kvöld.
Á viðskiptasviðinu segir Þorgerður að helst hafi verið ræddur sjávarútvegurinn og jarðhitaþekking Íslendinga. Á vef Stjórnarráðsins segir að orkusamstarf sé fyrirferðarmikið í samskiptum ríkjanna. Nærri hundrað kínverskir sérfræðingar hafi til að mynda lokið námi í Jarðhitaskóla GRÓ.
Á viðskiptasviðinu segir Þorgerður að helst hafi verið ræddur sjávarútvegurinn og jarðhitaþekking Íslendinga. Á vef tjórnarráðsins segir að orkusamstarf sé fyrirferðarmikið í samskiptum ríkjanna. Nærri hundrað kínverskir sérfræðingar hafi til að mynda lokið námi í Jarðhitaskóla GRÓ.
„Það er verið að fylgjast með því hvernig það gefst til en það er mikil spenna uppi með þetta flug, að það geti treyst enn frekar böndin á milli þessara landa sem eru með langt á milli.“
Fundurinn framar vonum
Þorgerður segir að fundurinn hafi verið framar vonum.
„Það var gaman að spjalla við þennan reynda og sjarmerandi utanríkisráðherra.“
Þá hafi staða heimsmála einnig komið til tals.
„Auðvitað ræddum við líka og ég lagði áherslu á stuðning okkar Íslendinga við réttlátan og langvarandi frið fyrir Úkraínu gegn grimmu árásarstríði Rússa og svo ræddi ég líka veru okkar í mannréttindaráðinu,“ sagði Þorgerður Katrín.
