Glórulaust er að selja innviði á borð við ljósleiðara, segir Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks hjá Veðurstofu Íslands. Umfram allt verði að tryggja að ljósleiðarar nýtist við náttúruvöktun og rannsóknir á náttúrufyrirbærum á borð við jöklahreyfingar, jarðskjálfta og eldfjöll.
Þetta er meðal þess sem Kristín segir í færslu á Facebook vegna hugmynda sem gætu leitt af sér breytingu á eignarhaldi Ljósleiðarans. Hann er í eigu Orkuveitunnar og allir hluthafar hennar þurfa að samþykkja sölu hans.
Nýr meirihluti í Reykjavíkurborg hefur sölu Ljósleiðarans á verkefnalista, bæjarstjórn Akraness hyggst ræða hana í desember og Borgarbyggð hefur samþykkt fyrir sitt leyti.
Kristín minnir á að ljósleiðarar séu ekki aðeins tenging við netheima heldur sé Ísland eitt af fáum löndum heims sem nýti þá til að skynja jarðskjálfta og hægar hreyfingar. Það hafi verið gert í um það bil áratug.
Þær Kristín og Vala Hjörleifsdóttir jarðskjálftafræðingur gerðu þessa nýtingu ljósleiðara að umfjöllunarefni í grein á Vísbendingu og sögðu hana auka öryggi í mati á fyrirboðum eldgosa.
Óvenjumikil náttúruvá sé hérlendis og áskoranir henni tengdar við rekstur tækja á hálendinu. Líklega sé Ísland eina landið sem reki eldfjallavöktunarkerfi sem byggir á ofurhægum aflögunarbreytingum á ljósleiðaranum. Slíkar breytingar hafi ítrekað mælst við upphaf kvikuhlaups í Sundhnúksgígaröð.
Kristín segir kosti þessarar tækni umfram hefðbundnar jarðskjálftamælingar felast í hárri upplausn í tíma og rúmi auk mikillar næmni þar sem aðeins eitt tæki þarf til að fylgjast með stóru landsvæði.
Mæliaðferðin kallast ljósleiðaraskynjunartækni en á ensku oftast DAS sem stendur fyrir „Distributed Acoustic Sensing“.
Til að framkvæma mælinguna þurfi tæki sem er kallað ljósleiðaravaki og samanstendur af tölvu með leysibúnaði sem sendir og les merkið. Ísland hefur verið leiðandi og tekið þátt í mörgum rannsóknum sem nýta ljósleiðaravaka.
