Gular viðvaranir vegna hvassviðris

Austanlands verða hvassar norðvestanáttir og gular viðvaranir í gildi vegna vinds á Austfjörðum og sunnan Vatnajökuls. Á vef Vegagerðarinnar segir að ófært sé vegna hvassviðris í Hamarsfirði og í Álftafirði.

Í öðrum landshlutum er mun hægari vindur og víða bjart. Það verður þó skýjað og dálítil él norðaustanlands. Frost á bilinu 0–7 stig. Norðanáttin gengur niður í kvöld og nótt.

Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Á morgun snýst í suðvestanátt og vestantil fer að snjóa. „Það hlýnar smám saman og úrkoman breytist í slyddu eða rigningu á láglendi síðdegis. Þurrt og kalt eystra, en dálítil snjókoma annað kvöld,“ segir í pistlinum.

Veðurviðvörun er í gildi á Austurlandi vegna hvassviðris til klukkan 15 síðdegis. Á Suðausturlandi tekur hún gildi klukkan 9 og varir til klukkan 18. Vindur verður á bilinu 15-23 m/s en hviður geta farið upp í 35 m/s. Varasamt ferðaveður, einkum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.