Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkti á fundi fyrr í vikunni að fela bæjarstjóra og hafnarstjóra að ákveða fast eldisgjald fyrir hvert kíló sem landað er til slátrunar.
Hingað til hefur Hafnasjóður rukkað eldisgjald í samræmi við hlutfall af verðmæti fisksins en sveitarfélagið hefur átt í samningaviðræðum við eldisfyrirtækin um fast gjald fyrir hvert kílógramm af eldisfiski.
Greint er frá því í fundargerð bæjarráðs að samningaviðræður við eldisfyrirtækin, sem rekja má allt aftur til ársins 2020, hafi þó skilað litlum árangri.
Vert er að taka fram að fulltrúi minnihluta bæjarráðs samþykkti ekki bókunina og segir æskilegra að málamiðlun sé reynd til þrautar.
Ósammála um upphæð gjalds
Í bréfi sem sent var til Arnarlax og Arctic Fish 19. október lagði bæjarráð
Vesturbæjar til að gjaldið nemi 4,60 krónum á hvert kíló. Upphæðin er sögð byggð á kostnaðargreiningu sem ráðgjafafyrirtækið KPMG vann fyrir sveitarfélagið:
„Kostnaður vegna þjónustu við fyrirtækið var metinn með hliðsjón af beinni hlutdeild, frádrætti vegna greiðslna þjónustubáta, töpuðum tekjum og 15% álagi vegna forgangsráðstöfunar á viðlegukanti,“ segir í bréfi Vesturbyggðar. „Miðað við framleiðslumagn eldisfyrirtækisins reiknast eðlilegt og kostnaðarrétt eldisgjald á bilinu 4,0 til 6,2 kr. á hvert kílógramm landaðs eldislax.“ Þá er bent á að 4,60 krónur séu á hóflegri enda kostnaðarbilsins sem KPMG reiknast til.
Arnarlax svaraði beiðni bæjarráðsins en í svarbréfi þeirra er sagt að tillaga Vesturbyggðar eigi sér ekki stoð í lögum. Þjónustugjöld sem innheimt eru af hinu opinbera eigi eingöngu að standa undir beinum kostnaði sem hlýst af þjónustunni.
Arnarlax vísar í aðra greiningu sem framkvæmd var af ODT endurskoðun þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að eðlilegt sé að miða eldisgjald við 0,34 krónur fyrir hvert kíló.
Fyrirtækið segist tilbúið til að hækka það gjald upp í eina krónu. „Er sú fjárhæð sett fram í sáttaskyni en í því felst ekki viðurkenning á lögmæti eldisgjalds að þeirri fjárhæð,“ segir enn fremur í svarbréfinu. Hins vegar krefst fyrirtækið þess að fá endurgreidd oftekin gjöld frá árinu 2020.
Í fundargerðinni kemur fram að Arctic Fish hafi ekki enn þá tekið afstöðu til málsins heldur hafi fyrirtækið byrjað á því að óska frekari upplýsinga frá sveitarfélaginu.
Vesturbyggð hyggst taka tillögu bæjarstjóra og hafnarstjóra að nýju gjaldi til afgreiðslu eins fljótt og auðið er.
Innheimta gengur misjafnlega
Arctic Fish slátrar líka fiski sínum í Bolungarvík og þar hefur fyrirtækið gert samning við sláturhúsið um greiðslu fyrir hvert landað kíló. Í Múlaþingi er líka slátrað og þar hefur höfnin á Djúpavogi fengið takmarkaðar greiðslur frá Kaldvík. Samningaviðræður á milli sveitarfélagsins og Kaldvíkur eru þó sagðar ganga vel.
Vesturbyggð hefur hins vegar lengi vakið athygli á því að lagaramminn í kringum innheimtu gjalda frá eldisfyrirtækjum sé verulega óskýr.
