Erlendur karlmaður sem ferðaðist með 15 ára gamalli stúlku var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli í byrjun nóvember 2024. Hann gat ekki gefið fullnægjandi skýringar á ferðalagi sínu og stúlkunnar og var því handtekinn.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar þar sem farbanni yfir föður stúlkunnar var hafnað. Úrskurðurinn er frá því í janúar 2025 en birtist á vefsvæði dómstólanna í dag.
Lögregla grunaði föðurinn um mansal með því að hafa gefið dóttur sína í nauðungarhjónaband þar sem hún hefði verið misnotuð kynferðislega.
Fjögur handtekin til viðbótar
Stúlkan var falin barnavernd eftir að hún og maðurinn voru stöðvuð. Þegar henni var fylgt úr flugstöðinni komu tveir menn aðvífandi – faðir mannsins sem hafði verið handtekinn og frændi hans.
Sá fyrrnefndi vildi fá að vita hvað væri að gerast og hélt því fram að hann væri faðir stúlkunnar. Hann gat þó ekki skýrt tengsl sín við stúlkuna og mennirnir voru báðir handteknir.
Allir þrír sátu í gæsluvarðhaldi til 8. nóvember 2024. Sama dag frétti lögregla af því að foreldrar stúlkunnar væru á leið til Íslands. Þau voru handtekin við komuna.
Fundu myndir af stúlkunni í hvítum brúðarkjól
Skýrslur voru teknar af stúlkunni. Í þeim kom fram að foreldrar hennar hefðu gift hana manninum. Hún sagði brúðkaupið hafa verið haldið í húsnæði á vegum fjölskyldu mannsins sem hún hefði verið gift. Þar hafi hún klæðst hvítum kjól.
Því næst hefði maðurinn farið með hana upp á meðan aðrir biðu á neðri hæðinni.
„Í kjölfarið fóru þau niður og sýndu rauðan blett til merkis um kynferðismökin og til staðfestingar á sambandinu og að það væri innsiglað,“ segir í úrskurðinum.
Við rannsóknina lagði lögregla hald á farsíma. Í þeim fundust myndir af stúlkunni í hvítum brúðarkjól ásamt fólkinu sem hafði verið handtekið.
Landsréttur féllst ekki á kröfu lögreglunnar um að setja farbann á föður stúlkunnar. Honum var því ekki gert að sæta farbanni.
