„Hann býður mér að verða sykurpabbinn minn“

„Hann býður mér það að verða sykurpabbinn minn; að ég fái borgað fyrir að vera með honum, “ segir Arna Sif Haukstein Knútsdóttir sem er 22 ára gömul kona. Hún talar þarna um fyrrverandi dansþjálfarann sinn sem hún var í danstímum hjá fram til ársins 2021 þegar hún var sautján ára gömul. Arna kærði manninn til lögreglu en kærunni var vísað frá árið 2023.

Deilur hafa staðið yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík sem hverfast um manninn sem Arna talar um. Deilan snýst um hvort hann geti verið meðlimur og þátttakandi í Dansfélagi Reykjavíkur eða ekki. Þetta er maður á sextugsaldri sem hefur verið vændur um meinta ósæmilega og meinta ólöglega hegðun gegn unglingsstúlkum. Hann hefur verið dansari í áratugi og tekið þátt í keppnum og orðið Íslandsmeistari auk þess sem hann hefur þjálfað börn og unglinga.

Deilan snýst um það hvort hægt sé að banna manninum að vera félagsmaður og iðkandi í skráðu íþróttafélagi segir Kara Arngrímsdóttir, eigandi Dansskóla Köru, en Dansfélag Reykjavíkur starfar innan hans. Félagið er aðili að Íþróttasambandi Íslands og er því háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.

Rætt er við Örnu Sif og Köru um þetta mál í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér.Deilur hafa staðið yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík sem hverfast um mann á miðjum aldri sem hefur verið vændur um meinta ósæmilega og meinta ólöglega hegðun gegn unglingsstúlkum. Kona sem kærði manninn segir sögu sína.

Dómstóll ítrekað úrskurðað manninum í vil

Dansfélag Reykjavíkur vildi ekki að maðurinn fengi að vera félagsmaður og iðka dans á vettvangi þess. Maðurinn hefur hins vegar viljað stunda dansíþróttina hjá félaginu og hefur sótt að fá að taka þátt í æfingum og keppnum.

Fyrr á árinu úrskurðaði dómstóll Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) að ekki væri hægt að meina manninum að vera félagi í Dansfélagi Reykjavíkur. Fjallað var um þennan dóm á RÚV.is

Í málinu taldi dómstóllinn að félagið hefði ekki nægan lagagrundvöll til að synja umsókn mannsins. Í dómnum segir meðal annars orðrétt: „Hér sé verið að vísa til ætlaðra brota kæranda frá árinu 2021 og augljóst sé að kæranda verði ekki sett agaviðurlög vegna ætlaðra brota fjórum árum seinna með því að synja honum um félagsaðild að félagi sem samkvæmt lögum sínum skal vera öllum opið. Ef ætlunin hefði verið að áminna kæranda, eða víkja honum úr félagi, hefði það verið verkefni DSÍ, sem hafi þó ekki tekið neina formlega, lögmæta ákvörðun þess efnis.“

Þetta gerðist í mars á þessu ári. Í þessum dómi felst að Dansfélag Reykjavíkur má ekki banna umræddum manni að vera félagsmaður í félaginu. Stjórn Íþróttasambands Íslands fjallaði um þennan dóm á stjórnarfundi í kjölfarið.

Dansfélagið áfrýjaði þessari niðurstöðu dómstólsins en þrír dómarar staðfestu þessa niðurstöðu í maí á þessu ári.

En um hvað snýst deilan í málinu nú? Það hefur ítrekað verið dæmt manninum í hag hjá dómstól ÍSÍ og lögreglan felldi niður rannsóknir á kærunum gegn manninum. Því er ekki lokið segir Kara og það snýst um prinsippmál í íþróttastarfsemi: Hvernig íþróttafélög geti tryggt öruggt umhverfi fyrir börn og aðra.

Kara segir að maðurinn hafi sótt það stíft að vera félagsmaður í dansfélaginu sem og iðkandi, það er að segja að æfa dans á vettvangi félagsins. Hún segir að í fyrra hafi hann sótt um að fá að vera í keppnishópi sem Kara þjálfar en í honum eru einungis börn og unglingar á aldrinum 12 til 18 ára. Hún segir að maðurinn eigi ekki heima í þessum hópi né öðrum á vettvangi Dansfélags Reykjavíkur. „Þessi einstaklingur hefur ítrekað verið kærður fyrir ósiðsamlega hegðun gagnvart ungum stúlkum þar sem hann var þjálfarinn. Það er kannski líka ein af ástæðunum fyrir því af hverju við höfum hafnað honum hingað til,“ segir Kara.

Fréttastofa reyndi ítrekað að á tali af manninum til að fá hans sjónarmið um þetta mál. Bæði var reynt að hafa samband við hann persónulega og eins í gegnum lögmann hans. Þetta gekk ekki.