Slæm framkoma við starfsfólk í byggingageiranum er stórt vandamál, að sögn Ólafs Oddgeirs Viðarssonar, húsasmíðameistari og eftirlitsfulltrúi í vinnustaðaeftirliti Byggiðnar, og bitnar langverst á erlendu starfsfólki. Launaþjófnaður og brot á kjarasamningum eru algeng og fjölmargir starfsmenn sem vinna iðnaðarstörf eru réttindalausir. Hann telur að ástandið hafi aldrei verið jafn slæmt.
„Þetta hefur bara fengið að ganga allt of lengi. Einhver hefur gripið gæsina og séð að hann getur komist upp með að greiða lægri laun eða fá ódýrara vinnuafl. Fengið starfsfólk til að vinna miklu, miklu meira heldur en kjasamningar benda á. Þá geturðu komið þér undan samkeppnisaðilanum og farið í undirboð,“ segir Ólafur í Síðdegisútvarpinu á Rás 2.
„Og svo þegar einhver sér að einhver er að leika þennan leik og hann ætlar að halda sér keppnishæfum á markaðinum, þá verður hann náttúrulega að gera það sama. Þetta bara vindur upp á sig.“
Hvatt til að vera ekki í samskiptum við Byggiðn
Ólafur segir algengt að erlent starfsfólk sé hrætt við að ræða við fulltrúa verkalýðsfélaga. Sorglegt sé að horfa upp á þessa framkomu við starfsfólk sem hafi jafnvel gengið í gegnum ýmislegt og átt erfitt með að finna vinnu erlendis. Því sé síðan lofað gulli og grænum skógum við komuna til Íslands þar sem því er boðið nýtt starf.
„Svo koma þau hingað og það fyrsta sem við gerum er að brjóta á þeim aftur. Þetta er rosalegt. Við höfum séð marga erlenda starfsmenn hlaupa í burtu frá okkur.“
Bókstaflega þá?
„Bara, þeir hafa hlaupið í burtu og falið sig.“
Ólafur segir dæmi um að vinnuveitendur hvetji starfsfólk til að ræða ekki við fulltrúa Byggiðnar.
„Því við erum komin til að taka störfin sem er náttúrulega þvert á það sem við erum að gera. Við erum að reyna að passa að það sé ekki verið að brjóta á þeim og að það sé verið að fylgja kjarasamningum.“
Logið til um greiðslur til stéttarfélaga
Ólafur segir launaþjófnað algengan og í þeim efnum sé allt reynt.
„Nýlega erum við að sjá mikið um jafnaðarlaun. Menn vinna svo bara eins og þeim er sagt en þá ertu bara með fasta launatölu.“
Starfsmenn fái stundum ekki greitt orlof og séu jafnvel sviknir um greiðslur til stéttarfélaga þó að annað komi fram á launaseðlum.
„Menn vita þá ekkert hvert þeir eiga að leita einu sinni. Það er verið að leika sér gjörsamlega að þessu fólki. Það er verið að reyna að halda þeim eins óupplýstum og mögulega hægt er til þess að það sé hægt að brjóta eins mikið á þeim og hægt er.“
Hlustaðu á viðtalið við Ólaf í Síðdegisútvarpinu í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.Dæmi eru um að erlendir iðnaðarmenn hlaupi frá fulltrúum verkalýðsfélaga þegar þeir mæta í eftirlitsferðir, að sögn eftirlitsfulltrúa Byggiðnar. Honum blöskrar ástandið á byggingamarkaðinum og segir illa komið fram við starfsfólk, sérstaklega erlent.
