Neyðarnúmerið 112 var óvirkt í rúma klukkustund í dag á meðan norðanhvellur gekk yfir landið. Ástæðan var bilun í hugbúnaði.
Bilunarinnar varð vart upp úr klukkan þrjú í dag á meðan vonskuveður gekk yfir stóran hluta landsins. Þá var farið um leið í að kanna hvað olli og neyðarsímstöð var virkjuð.
Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir grafalvarlegt að slíkt geti gerst.
„Það er bara hræðilegt og mjög alvarlegt og í rauninni á það bara ekki að geta gerst. En þetta er bara eins og með aðra tækni, það geta orðið bilanir og við erum ekki undanskilin því en gerum það sem við getum til að koma í veg fyrir það. Aftur á móti er 112, eins og þú segir, það er grafalvarlegt ef þetta dettur úr virkni.“
