Hraunar yfir Seðlabanka Íslands

„Ísland hefur verið með sinn eigin seðlabanka í nærri 100 ár. Því miður hefur það ekki verið farsæl saga.“. Svona byrjar pistill sem danski hagfræðingurinn Lars Christensen birti á Facebook síðu sinni í gær.

Hann er mörgum Íslendingum að góðu kunnur. Hann var yfirhagfræðingur Danske Bank í Danmörku á árunum fyrir hrun íslenska fjármálakerfisins árið 2008. Hann fékk bágt fyrir frá íslenskum ráðamönnum og bankaelítu þegar bankinn dró upp svarta mynd af stöðunni í íslensku efnahagslífi.

Hann lýsir því í pistli sínum hvernig efnahagsástand á Íslandi hefur þróast til hins verra frá því að Seðlabanki Íslands var stofnaður.

„Þegar við Danir lítum á norsku og sænsku krónuna erum við vön því að gengið sé nokkuð nálægt 1. Þannig er það alls ekki í tilfelli íslensku krónunnar. Í dag þarf að greiða um 18 íslenskar krónur fyrir eina danska krónu.“

Christensen bendir á að þannig hafi það ekki alltaf verið. Íslandsbanki, sem var þá ekki í ríkiseigu, hafi frá 1904 starfað sem eins konar seðlabanki. Fram til ársins 1920 hafi íslenska krónan fylgt þeirri dönsku ein á móti einni. Árið 1927 hafi Landsbankinn, sem var í eigu ríkisins, tekið við sem seðlabanki landsins. Á næsta ári, 2027, hafi Íslendingar því verið með sinn eigin seðlabanka í 100 ár.

Verðlag hækkað 774 sinnum meira á Íslandi

„Því miður eru þessi 100 ár ekki saga um velgengi. Frá 1926 til 2025 hefur ársverðbólga á Íslandi að meðaltali verið 11% í samanburði við 3,7 prósent í Danmörku. Þá hefur verðlag á Íslandi hækkað 29.400 falt í samanburði við 38 falt í Danmörku.“

Hann segir að ástandið hafi sérstaklega farið úr böndunum á áttunda áratugnum. Vöxtum hafi verið stýrt af pólitískum ákvörðunum og ríkissjóður fjármagnaði fjárlagahalla sinn með yfirdrætti hjá Seðlabankanum. „Þegar laun hækkuðu var krónan gengisfelld svo útflutningsgreinarnar gætu staðið undir kostnaðinum. Raunvextir voru um langt skeið neikvæðir um 10 til 20 %.“

Þá rekur hann tíma óðaverðbólgu hér á landi þegar verðbólga mældist mest um 84 prósent en verðbólgan allt árið 1983, það er frá janúar 1983 til janúar 1984, mældist rúm 70%.

Christiansen segir þetta stafa af ákvörðunum íslenska seðlabankans. Ísland hafi í áratugi kosið að mæta launakröfum, fjárlagahalla og þörfum sjávarútvegsins með því að auka peningaframboð og viðhalda þannig mikilli verðbólgu.„Því miður hafa þessir ósiðir ekki alveg horfið enn þann dag í dag.“

Hann varar aðra seðlabanka við að feta sömu braut og Seðlabanki Íslands gerði á áttunda og níunda áratugnum. Eins og staðan sé í dag séu auknar líkur á að það gerist vegna pólitískra afskipta.

„Mikill halli á ríkisrekstri setur þrýsting á seðlabanka þegar stjórnmálamenn vilja ráða vaxtastiginu. Ef seðlabankinn lætur undan þrýstingnum og eykur peningaframboð til að mæta þörfinni er ekki lengur neitt haldreipi til að tryggja verðstöðugleika,“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.