Hvasst og blautt

Allhvöss sunnanátt og rigning setja mark sitt á vestanvert landið í morgunsárið áður en rigningin færist yfir á austanvert landið þegar líður á daginn. Mjög getur hvesst í hviðum á Norðurlandi vestra þegar skilin fara yfir og þá ættu ökumenn á farartækjum sem taka á sig mikinn vind að hafa varann á sér.

Veðurspáin er svohljóðandi:

Sunnan 10-18 metrar á sekúndu og rigning sunnan- og vestantil, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hiti 5 til 13 stig. Snýst suðvestan 8-15 með lítilsháttar skúrum eftir hádegi, fyrst vestast á landinu og kólnar smám saman.

Sunnan 5-13 metrar á sekúndu og skúrir á morgun, en bjartviðri á norðaustanverðu landinu. Hiti 2 til 7 stig.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.