Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra flutti Alþingi skýrslu um málefni Landsvirkjunar í dag. Óskað var eftir skýrslunni vegna birtingu RÚV á gögnum sem tengjast uppsögn forstjórans Harðar Arnarsonar, meðal annars um minnisblað þar sem Hörður lýsir áhyggjum af því sem hann upplifði sem pólitísk afskipti.
Stór hluti umræðunnar sneri að því hvort fjármálaráðherra hafi sagt þinginu ósatt í fyrirspurnartíma þann 19. október. Þá var hann spurður að því hvers vegna Hörður hafi hætt störfum og var svarið að það væri vegna ágreinings um stjórnarhætti. Það væri sagan öll.
Daði Már greindi frá því að hann hafi verið upplýstur um ábendingar Harðar þann 11. september, tæpum þremur mánuðum eftir að Hörður skrifaði minnisblaðið. Stjórnarandstæðingar vilja meina að ráðherrann hafi haldið þeim upplýsingum frá þinginu.
„Af hverju sagði hæstvirtur ráðherra okkur ekki frá þessu erindi forstjórans, sem augljóslega er eins tengt málinu og getur orðið, þegar hann var spurður að því af hverju forstjóri Landsvirkjunar hefði hætt eftir 17 ára farsælt starf?“ spurði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmanns Framsóknarflokksins, tók í sama streng. „Frá þessu greindi fjármála- og efnahagsráðherra okkur hér á Alþingi og þjóðinni ekki frá í þessari umræðu sem við tókum 19. október.“
Daði ítrekaði oftar en einu sinni að minniblað Harðar hafi einmitt um snúist um stjórnarhætti, líkt og fram kom í svari hans þann 19. október. Hann tók fram að farsælasti farvegurinn fyrir framhald málsins væri sá að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins fái öll gögn málsins og taki málið til ítarlegrar skoðunar.
„Það hafa engin pólitísk afskipti verið af hendi fjármála- og efnahagsráðuneytisins varðandi Landsvirkjun. Engin.“
