Íbúar óttast um öryggi sitt eftir versnandi símasamband

Þann 1. júní síðastliðinn var útfösun á 2G- og 3G-kerfum landsins að fullu lokið. Þessi kerfi eru því ekki lengur í notkun hérlendis en undirbúningur við það að slökkva á 2G- og 3G-sendum landsins hafði staðið yfir frá því 2022.

Fjarskiptastofa viðurkennir að samband gæti hafa versnað sums staðar en batnað annars staðar. Stofnunin hefur takmarkaðar heimildir til inngripa. Niðurstöður umfangsmikilla mælinga á útbreiðslu farsímasambands liggja fyrir í byrjun desember.

Ísland var fyrsta landið í Evrópu til þess að loka þessum kerfum alfarið, en við taka 4G- og 5G-kerfi.

Upphaflega átti lokuninni að ljúka um áramót en sökum óvæntra vandamála sem upp komu í október var ákveðið að fresta framkvæmdinni um hálft ár. Vandkvæðin sem upp komu tengdust neyðarhringingum – eins og fjallað hefur verið ítarlega um í fréttum RÚV.

Farnetskerfið er í eigu og rekstri fjarskiptafyrirtækjanna á Íslandi. Það eru fyrirtæki eins og Síminn, SÝN og NOVA. Fjarskiptastofa hefur eftirlit með að þessi fyrirtæki starfi eftir lögum, uppfylli skilyrði og tryggi öryggi og áreiðanleika fjarskipta.

Lokun gömlu kerfanna var því að frumkvæði fjarskiptafyritækjanna og var fyrst kynnt Fjarskiptastofu árið 2022. Tæknileg framkvæmd og tímasetning lokunarinnar var á ábyrgð rekstraraðila.

Fjarskiptasamband eftir lokun átti að verða betra. Ef ekki betra þá að minnsta kosti jafn gott. Andri Fannar Traustason er bóndi í Flögu í Skriðdal á Austurlandi.

„Það hefur alveg hríðversnað eftir að slökkt var á 2G- og 3G-sendunum. Þú kannski ert með einhverja punkta hingað og þangað en þá tolla þeir ekki inni og slitnar um leið. Eins og ég segi er þetta ekki góð staða. Þetta hefur þau áhrif að maður er utan þjónustusvæðis. Ef eitthvað kemur uppá þá er maður bara pínu háður þessu. Þetta er auðvitað gríðarlegt öryggisatriði. Maður hefur séð það á þessu ári þar sem verður slys og ekki símasamband hvort sem það er í okkar dal eða einhverjum öðrum. Þá er þetta bara, já mjög alvarleg staða.“

Vænta niðurstöðu mælinga

Í samtali við fréttastofu í maí sagði Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, að samband ætti ekki að versna eftir að slökkt væri á 2G- og 3G-sendunum. Nokkrar ábendingar hafa þó borist um slíkt.

Svona metur Hrafnkell stöðuna í dag:

„Frá því 1. júní þegar slökkt var á kerfunum höfum við ekki fengið mikið af tilkynningum frá einstökum aðilum en þó eitthvað. Hins vegar hafa fulltrúar sveitarstjórna verið svolítið í sambandi við okkur með þessi skilaboð að útbreiðslan hafi breyst. Og það er svona okkar tilfinning að eins og þú segir, það hefur versnað á einhverjum stöðum.“

Til þess að bregðast við því fékk Fjarskiptastofa þýska fyrirtækið Rohde og Schwarz til þess að gera mælingar á útbreiðslu símasambands í haust. Hrafnkell segir von á niðurstöðum í byrjun desember.

„Mælingarnar fara þannig fram að það er mælt í fyrsta lagi í þéttbýli, svona staðir þar sem að um 80% þjóðinni búa. Í öðru lagi þjóðvegakerfið mælt. Nokkuð viðamikil mæling, ég man ekki hvort það séu keyrðir milli 8 og 9 þúsund kílómetrar og síðan eru einstaka aðrir staðir mældir eins og ferðamannastaðir, sumir ferðamannastaðir og svo framvegis. Það sem er ekki mælt er, við getum augljóslega ekki mælt allt landið og hálendið og dali og jökla og óbyggðir.“

Alvarlegt að vera fastur upp á heiði í slæmu símasambandi

Innviðaráðuneytið fer með málefni fjarskipta hérlendis. Að beiðni þess vann Fjarskiptastofa skýrslu um hvernig gekk að loka kerfunum.

Skýrslan var gerð opinber í september. Þar segir meðal annars að frá september 2025 til ágúst 2026 hafi eitt hundrað tilkynningar borist stofnuninni um breytingar á sambandi.

Þar segir einnig að fyrir utan vandamál með neyðarhringingar hafi lokun kerfanna gengið vel. Þessu eru ekki allir sammála.

Gerður Björk Sveinsdóttir er bæjarstjóri í Vesturbyggð. Þar hefur símasamband verið með versta móti.

„Okkar upplifun er að símasamband er engan veginn nógu gott og hefur ekki verið nógu gott. Það hefur aldrei náð því að vera almennilegt á þessu svæði en eftir að 2G og 3G var tekið út finnum við verulegan mun. Þetta hefur auðvitað þau áhrif að fólk er ekki öruggt á ferðinni og getur ekki treyst því að ná sambandi þegar það þarf að ná sambandi. Það er nú vetrarþjónusta á vegum á fjallvegum ekki mjög góð, það getur verið mjög slæmt og alvarlegt að vera fastur upp á heiði í lélegu símasambandi.“

Þá hafa íbúar í dreifbýli, sérstaklega bændur, kvartað yfir verra símasambandi. Árni Sverrisson er bóndi á Efri-Ási í Hjaltadal á Norðurlandi.

„Það er í rauninni bara skelfilegt sko. Þú nærð á mér núna, ég er heima hjá mér. Ef ég væri ekki með svokallaða call over wifi tengingu, þá næst ekkert á mér.“

Fjarskiptastofa vill betri inngripsheimildir

Eins og áður segir er farnetskerfið í eigu og rekstri einkaaðila. Hverjar eru heimildir Fjarskiptastofu, sem á að sinna eftirlitshlutverki, til að bregðast við?

„Það fer svolítið eftir hvar það er. Ef það er í þéttbýli þar sem að var áður útbreiðsla en er ekki eftir breytinguna þá teljum við að við höfum heimildir til að stíga inn í það. Sömuleiðis með þjóðvegakerfið, það eru skýr ákvæði með það. Það sem snúið eru víðerni landsins og óbyggðir og jafnvel sveitir landsins þar sem að krafan er varðandi sveitabæi er að það sé merki einhvers staðar inn í húsinu ekki endilega alls staðar inn í húsinu eða hvað þá í gripahúsum eða útihúsum og alls ekki á allri landareigninni,“ segir Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu.

Í íslenskum lögum er farnetskerfið ekki skilgreint sem neyðarkerfi. Með öðrum orðum, það að geta verið í símasambandi um allt land er ekki talið nauðsynlegt með lögum. Til þess er TETRA-kerfið, sem er lögbundið öryggiskerfi björgunar- og viðbragðsaðila. Það kerfi er ekki rekið af einkaaðilum á markaði, heldur sér ríkisrekna félagið Korda um rekstur TETRA-kerfisins.

Þetta kemur fólki stundum á óvart. Árni á Efri-Ási er einn þeirra:„Þetta er stórkostlegt öryggismál. Það er búið að beina öllu í þessa átt, að treysta á símana.“

Gerður segir dæmi þess að fólk hafi verið fast uppi á heiði án nokkurs símasambands.

„Það eru mörg dæmi þess. Það til dæmis féll snjóflóð á veginn á Kleifarheiðinni þá var fólk fast þar og hafði ekki hugmynd um að það hefði fallið snjóflóð. Það var sjálft á hættusvæði. Það taldi sig vera þar fast því það væri slys fyrir framan en það var mjög alvarlegt að sú staða skyldi koma upp í engu símasambandi. Það er mjög algengt að bílar festi sig á þessum svæðum og sitji þar fast.“

Í skýrslunni sem Fjarskiptastofa vann fyrir innviðaráðuneytið um lokunina eru lagðar til níu tillögur til úrbóta á núverandi kerfi.

Meðal þess sem Fjarskiptastofa leggur til er að hún fái beinar inngripsheimildir við meiriháttar kerfisbreytingar fjarskipta – það er að segja að hægt sé að grípa inn í þegar að einkaaðilar á markaði ætla að fara í umfangsmiklar breytingar eins og að loka 2G- og 3G-sendum.

Einnig er lagt til að almenningur hafi aðgang að öruggu fjarskiptakerfi í neyð – sem hefur þá meira áfallaþol og meiri útbreiðslu en almenn fjarskiptanet. En hvað myndi það þýða?

„Í fyrsta lagi held ég að það myndi þýða meiri útbreiðslu en við höfum í dag, ekki aðeins á landsvísu og þá kannski ekki síður fyrir utan byggð ból því það er oft dekkun nálægt byggðum bólum. Það er þá í fyrsta lagi útbreiðslan. í öðru lagi værum við væntanlega að horfa til aukins varaafls. Það er varaafl á kerfunum í dag svo það sé alveg á hreinu. Í þriðja lagi væri horft á almennt áfallaþol kerfisins. Við búum á Íslandi hér eru eldgos og flóð og jarðskjálftar og ég veit ekki hvað, óveður. Bara þannig kerfið að öðru leyti standi af sér áföll svo nokkur kostur er,“ segir Hrafnkell.

Bjartsýnn á innleiðingu nýs kerfis á næsta áratug

Tetra-kerfið er rekið af Korda, sem er nýtt íslenskt ríkisfyrirtæki sem hóf störf í september. Það varð til við sameiningu Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar.

Í fréttum hefur komið fram að Korda telji mikilvægt að læra af reynslunni með útfösun 2G og 3G áður en nýtt kerfi tekur við af TETRA-kerfinu.

TETRA-kerfið er enn í fullum rekstri en í skýrslu fjarskiptastofu segir að því verði skipt út í byrjun næsta áratugar og við taki 5G-kerfi sem gæti, með réttri hönnun og innleiðingu, einnig þjónað sem öryggiskerfi almennings. Hrafnkell er bjartsýnn á að svo verði.

„Nú stendur yfir vinna um það að kanna hvaða leiðir á að fara við endurnýjun TETRA-kerfisins sem er skilgreint sem öruggt kerfi með meiri útbreiðslu og meiri uppitíma í varaafli og svo framvegis. Ef niðurstaða þess vinnuhóps verður sú að sett verði upp 5G-kerfi, við erum að tala um eftir 2030, í stað TETRA-kerfisins og þá tekur það við að 5G sé almennt fjarskiptakerfi og þá væri hægt að tengja neyðarsímtöl almennings inn á það kerfi,“ segir Hrafnkell.

Von er á niðurstöðu úr mælingum Rohde og Schwarz á næstu vikum og verður fróðlegt að sjá hana, þar sem upplifun fólks á landsbyggðinni og tölulegum gögnum fjarskiptafyrirtækjanna fer ekki saman þegar rætt er um símasamband, eða sambandsleysi.