Framkvæmdir eru hafnar við nýja Þjóðarhöll í Laugardal en byggingin er samstarfsverkefni ríkis og borgar. Mennta- og barnamálaráðherra segir að nú sé hægt að fara að bjóða öðrum þjóðum heim til kappleikja.
Lengi hefur staðið til að hefja framkvæmdir við Þjóðarhöll – fjölnota íþrótta og viðburðahús. Til dæmis átti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi borgarstjóri fundi með forystumönnum Handknattleikssambands Íslands árið 1994 um að reisa nýtt íþróttahús fyrir HM í handbolta karla sem haldið var í Reykjavík 1995.
En svo bar til tíðinda í dag.
Fyrsta skóflustungan var tekin og um það sáu ungir íþróttamenn úr aðildarfélögum ÍSÍ og ungmenni úr Þrótti og Ármanni.
Um þriðjungur af Kringlunni
Höllin verður um 17.700 fermetrar – sem er um þriðjungur af Kringlunni og tæplega einn fjórði af Smáralind. Talsvert minni en Harpa og nokkru stærri en Græna gímaldið.
Í Þjóðarhöll verða 8.600 sæti og þar rúmast allt að 12.000 gestir á viðburðum.
Höllin rís sunnan við Laugardalshöll, á að vera tilbúin eftir rúm þrjú ár, í janúar 2030, og þegar hefur verið ákveðið að halda þar HM karla í handbolta ári síðar.
Algerlega ómetanlegt
Laugardalshöll sem var vígð árið 1965 uppfyllir ekki alþjóðlegar kröfur og landsleikir hafa verið haldnir þar með undanþágu síðustu ár.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra sem einnig er ráðherra íþróttamála sér mikla möguleika með tilkomu Þjóðarhallar.
„Nú getum við boðið heim. Þetta er algerlega ómetanlegt,“ segir ráðherra.
Erum við að fara að bjóða mikið heim? „Það ætla ég rétt að vona.“
Verður falast eftir einhverjum stórum viðburðum eða stórmótum? „Við erum að minnsta kosti orðin samkeppnishæf við alla aðra og það skiptir okkur miklu máli að fá að taka þátt. Það er hagur samfélagsins alls.“
Mikið starf fyrir börn og ungmenni
Áætlaður kostnaður er tæpir 17 milljarðar; ríkið greiðir 55% og Reykjavíkurborg 45%. Tvö íþróttafélög í Reykjavík – Þróttur og Ármann fá aðstöðu í nýja húsinu.
„Hér mun fara fram mikið starf fyrir börn og ungmenni í Laugardalnum,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
„Hér fer líka fram starf fyrir afreksíþróttafólk og hér verður menningarlíf og viðburðahald. Þannig að við bindum miklar vonir við nýja Þjóðarhöll og erum full tilhlökkunar.“
