Stjórnarflokkunum hefur haldist illa á þingmönnum og eru búnir að missa þrjá frá sér áður en kjörtímabilið er hálfnað. Það er þó ekkert nýdæmi að þingmenn skipti um vistarverur. Metið á sennilega Kristinn H. Gunnarsson sem skipti þrisvar um flokk á þeim tólf árum sem hann sat á þingi.
Þegar Ingvar Þóroddsson sagði sig úr Viðreisn í gær var það í 25. skipti á þessari öld sem þingmaður gekk úr einum flokki í annan. Þar að auki hafa fjórir þingmenn sagt skilið við sinn flokk án þess að ganga í annan flokk – í það minnsta fyrst um sinn.
Karlar eru mun líklegri en konur til að skipta um flokk. Af þeim 29 skiptum sem þingmenn hafa sagt sig úr þingflokki á þessari öld hefur það aðeins gerst fjórum sinnum að kona hafi átt hlut að máli.
Lista með nöfnum þeirra þingmanna sem skipt hafa um flokk er að finna neðst í fréttinni.
Allir farnir innan hálfs árs
Vinstri grænum hélst einna verst á þingmönnum á þessari öld. Alls völdu sjö þingmenn flokksins að segja skilið við hann og ýmist ganga til liðs við aðra flokka eða starfa sem þingmenn utan flokka.
Fjórir af fjórtán þingmönnum flokksins sögðu skilið við hann í tíð vinstristjórnarinnar 2009–2013 og tveir til viðbótar skömmu eftir að flokkurinn myndaði stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki 2019.
Enginn flokkur fór þó verr út úr flokkaskiptum en Borgarahreyfingin sem var stofnuð eftir hrun og bauð fram í kosningum vorið 2009. Um haustið voru allir þingmenn flokksins horfnir á braut.
Þráinn Bertelsson sagði sig úr flokknum vegna ósættis við hina þingmennina og gekk síðar til liðs við Vinstri græn. Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari sögðu sig úr flokknum vegna deilna flokks og þingflokks. Fyrrum þingmenn Borgarahreyfingarinnar stofnuðu Hreyfinguna.
Flestir litu til Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins
Miðflokknum hefur tekist best upp við að draga að sér þingmenn annarra flokka á þessari öld, fengið til sín fimm þingmenn. Þar spilar þó inn í að flokkurinn var stofnaður af sitjandi þingmanni, fyrrverandi forsætisráðherranum og formanni Framsóknarflokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem fékk Gunnar Braga Sveinsson með sér.
Sjálfstæðisflokkurinn má vel við una. Fjórir sem kosnir voru á þing fyrir aðra flokka skiptu þangað yfir. Á móti kemur að einn þingmaður sagði sig úr flokknum undir lok kjörtímabilsins 1999–2003.
Úr Alþýðubandalagi í Framsókn í Frjálslynda og aftur í Framsókn
Sumir þingmenn hafa verið duglegri við að skipta um flokk en aðrir.
Kristinn H. Gunnarsson sat tólf ár á Alþingi og kynntist þremur þingflokksherbergjum. Hann var kosinn á þing fyrir Alþýðubandalagið 1995 en gekk til liðs við Framsóknarflokkinn fyrir næstu kosningar, þegar Samfylkingin var stofnuð. 2007 klauf hann sig úr Framsóknarflokknum og gekk til liðs við Frjálslynda flokkinn áður en hann skilaði sér aftur í Framsókn rétt fyrir kosningar 2009.
Hannibal Valdimarsson var ekki aðeins þekktur flokkaflakkari heldur vann hann það einstaka afrek að vera formaður þriggja flokka, þar á meðal tveggja sem hann stofnaði sjálfur. Hann var fyrst kosinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn, síðan fyrir Alþýðubandalagið og loks fyrir Samtök frjálslyndra og vinstrimanna.
Úr flokkaflakki á forsetastól
Þó að flokkaskipti þingmanna hafi oft valdið deilum þá hefur það ekki alltaf bundið enda á stjórnmálaferil þeirra. Gott dæmi um það eru tveir af forsetum lýðveldisins.
Ásgeir Ásgeirsson, fyrsti forsetinn sem kosinn var af þjóðinni, var fyrst kosinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn en gekk síðan til liðs við Alþýðuflokkinn.
Ólafur Ragnar Grímsson hóf sinn stjórnmálaferil í ungliðahreyfingu Framsóknarflokksins, varð síðar varaþingmaður Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna og loks þingmaður og formaður Alþýðubandalagsins.
Fljótustu flokkaskiptin
Enginn hefur verið fljótari að skipta um flokk innan kjörtímabils en Birgir Þórarinsson. Hálfum mánuði eftir að hann var endurkjörinn á þing fyrir Miðflokkinn 2021 sagði hann sig úr flokknum og gekk í Sjálfstæðisflokkinn.
Hann sagði þetta afleiðingu af langvinnum deilum innan Miðflokksins og var gagnrýndur fyrir að hafa ekki stigið fram fyrir kosningar.
