Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur um að sýkna íslenska ríkið af kröfu manns sem hefur staðið í deilu við það um það hvar hann átti að borga skatta á þriggja mánaða tímabili árið 2012.
Maðurinn fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Bretlands árið 2012. Hann var farinn út í maí en fjölskyldan fylgdi á eftir í ágúst.
Maðurinn og íslenska ríkið deildu um það hvort skattfesti hans hefði haldist á Íslandi þangað til fjölskyldan flutti út eða færst til Bretlands um vorið. Áður en fjölskylda mannsins flutti frá Íslandi dvaldi hann á breskum herragarði endurgjaldslaust í eigu viðskiptafélaga síns.
Maðurinn hafði átt aðild að samningi í júní 2012 sem færði honum talsverða fjármuni sem sættu hvorki skattlagningu á Íslandi né í Bretlandi að mati ríkisskattstjóra. Maðurinn taldi sig hafa sannað að hann væri með heimilisfesti og skattskyldur á Bretlandi með framlagningu tveggja skjala en skattyfirvöld og dómstólar töldu þau ófullnægjandi.
Íslensk skattayfirvöld töldu að maðurinn hefði haldið áfram fastri búsetu á Íslandi þar til í ágúst. Skatturinn taldi að búseta mannsins á herragarðinum, með takmörkunum sem um hana giltu, bæri með sér að vera skammtímadvöl sem hefði ekki áhrif á lögheimilisskráningu og skattagreiðslur.
Að mati Hæstaréttar hafði yfirskattanefnd ástæðu til að áætla að maðurinn hefði ekki fellt niður heimilisfesti á Íslandi í maí 2012 og var dómur fyrri dómsstiga því staðfestur.
