Kæmi ekki á óvart ef fleiri fylgdu í kjölfarið

Jón Gnarr þingmaður segir að það kæmi sér ekki á óvart ef fleiri þingmenn Viðreisnar segðu sig úr flokknum. Ingvar Þóroddsson tilkynnti í dag að hann hefði sagt sig úr Viðreisn og gengið í Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfur sagði Jón sig úr þingflokknum fyrir mánuði síðan, 15. október. Hann gekk þó ekki í annan flokk.

Segjum að það kæmi önnur frétt eftir annan mánuð, að þriðji þingmaðurinn væri farinn úr flokknum, kæmi það þér á óvart?

„Nei, það myndi ekki gera það.“

Ertu þá með einhvern sérstakan þingmann í huga?

„Nei. En miðað við mínar aðstæður að stíga út úr þessum hópi, af því að mér fannst aðstæðurnar orðnar gjörsamlega óþolandi, þá get ég alveg ímyndað mér að öðrum finnist það líka.“

Tímaspursmál hvenær hann léti af verða

Jón segir ákvörðun Ingvars ekki hafa komið sér á óvart. Það hafi í hans huga verið tímaspursmál hvenær hann léti verða af því að segja sig úr þingflokknum. Þeir höfðu rætt málið eftir að Jón Gnarr sagði sig úr flokknum.

Hann segir þá ekki hafa rætt mögulega úrsögn áður en Jón Gnarr kom fram með sína ákvörðun, þeir hafi þó rætt vinnubrögð þingflokksins.

„Já, ég hef bara rætt þau mál nokkuð opinskátt við alla í þingflokknum og rætt það við hann og þetta sem ég hef kvartað yfir, til dæmis óljósar ákvarðanatökur og ekki sérstaklega lýðræðislegar. Það höfum við rætt, já, og þennan skort á forystu sem mér hefur fundist mjög óþægilegur.“

„Hlakkar ekki í mér“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagðist fyrr í dag hafa rætt við fleiri þingmenn ríkisstjórnarinnar um að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Jón Gnarr segist ekki vita til hvaða þingmanna hún vísi.

Þá treystir hann sér ekki til að segja til um hvaða áhrif úrsögn Ingvars hafi á stjórnarsamstarfið.

„Ég treysti mér ekki til að fella dóm um það en þetta er leiðinlegt fyrir ríkisstjórnarsamstarfið að missa mann úr sínum röðum, það er bara erfitt og ekkert sem hlakkar í mér neitt yfir.“