Kærður fyrir þriggja milljóna króna fjárdrátt úr foreldrafélagi Foldaskóla

Stjórn foreldrafélags Foldaskóla hefur kært fyrrverandi gjaldkera félagsins til lögreglu eftir að grunur kviknaði um að viðkomandi hefði dregið sér fé úr sjóðum félagsins.

Foreldrum var tilkynnt um málið í tölvupósti þar sem segir að við yfirferð á bókhaldi og fjármálum félagsins hafi frávik komið í ljós. Þau megi rekja til áranna 2024 til 2025, þegar fyrrverandi gjaldkeri hafði umsjón með fjármunum þess.

„Þetta er leiðindamál og stjórnin er að vinna í þessu,“ segir Helgi Þór Guðmundsson, formaður foreldrafélags Foldaskóla. „Þetta er komið í hendur lögreglu og hún fer sína leið.“

Millifærslur upp á þrjár milljónir

Talið er að millifærðar hafi verið rétt yfir þrjár milljónir úr sjóðum félagsins inn á persónulegan bankareikning gjaldkerans.

Í pósti félagsins segir að gjaldkerinn hafi verið samstarfsfús og hafi þegar endurgreitt tæpar tvær milljónir. Eftir standi ein milljón en gjaldkerinn hafi þó lýst yfir vilja til að gera upp skuldina að fullu.

Stjórn foreldrafélagsins segir að fjárkröfu á hendur viðkomandi verði haldið uppi vegna eftirstöðvanna, auk vaxta og kostnaðar.

Allt bendi til að gjaldkerinn hafi verið einn að verki

Stjórnin segir að í yfirferð sinni hafi ekkert komið fram sem bendi til þess að aðrir stjórnarmenn, hvorki í núverandi stjórn né fyrri stjórnum, hafi átt aðild að brotunum eða haft vitneskju um þau.

Gjaldkerinn hafi einn haft aðgang að bankareikningum félagsins. Ekkert bendi til annars en að hann hafi verið einn að verki. Fjármunir félagsins eru alla jafna notaðir í verkefni og viðburði í þágu nemenda í Foldaskóla.