Kallað til björgunarsveita og þyrlu vegna vélsleðamanns á Langjökli

Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur til að aðstoða slasaðan vélsleðamann á Langjökli nærri Hvítárvatni.

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa tekið á loft klukkan 16:00 og hún hafi lent á Langjökli um hálftíma síðar.

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitir séu á leiðinni og að þær séu á jökuljaðrinum sem stendur.

Ekki er vitað er vitað hvernig slysið varð eða hver líðan mannsins er að svo stöddu.