Kennari sagði börnum að tala ekki um atlot starfsmanna

Börn í bekk í Hagaskóla voru beðin um að tala ekki um ástaratlot tveggja starfsmanna sem sáust í gegnum sandblásið gler á skrifstofu á skólatíma á þriðjudaginn. Þetta hefur fréttastofa eftir foreldrum barnanna. Skólastjórnendur segjast líta málið alvarlegum augum.

Börnin urðu vitni að atvikinu og töldu meira en kossaflens hafa átt sér stað bak við glerið.

„Ég veit ekki nákvæmlega hvaða orðaskipti fóru fram á milli starfsmanna og barna þegar atvikið kom upp. Málið er í vinnslu innan skólans og í samstarfi við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs og ég mun ekki tjá mig frekar um það við fjölmiðla,“ segir Sigríður Nanna Heimisdóttir skólastjóri Hagaskóla í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Hún svarar því ekki hvort starfsmennirnir séu enn við störf á meðan málið er til skoðunar. Þá svarar hún ekki spurningu fréttastofu um hvort atvikið sé einangrað.

Ljósmynd hefur farið í dreifingu sem er sögð sýna atvikið. Á henni sjást skuggar tveggja einstaklinga bak við sandblásið gler, sem rímar við atvikalýsingu skólastjóra Hagaskóla í fyrra samtali við fréttastofu. Á myndinni virðist annar einstaklingurinn liggja á bakinu og hinn sitja ofan á honum.

Sigríður Nanna svaraði ekki spurningum fréttastofu um hvort skólanum væri kunnugt um ljósmyndina né hvort grunur væri á að starfsmennirnir hefðu verið að stunda kynlíf líkt og sumir fjölmiðlar hafa greint frá.

Litið alvarlegum augum „í ljósi nýrra upplýsinga“

Í tölvupósti til foreldra segir að í ljósi nýrra upplýsinga sem skólastjórnendum hafi borist, svo sem mynda, vilji stjórnendur árétta að skólinn líti málið alvarlegum augum. Boðið verði upp á samtal fyrir þau börn sem urðu vitni að atvikinu ef þau eða foreldrar þeirra telja þörf á.

„Skólinn harmar að þetta atvik hafi átt sér stað og mun vinna að úrlausn þessa viðkvæma máls samkvæmt verkferlum.“