Keyrði á tré á flótta undan lögreglu

Lögreglan á Vestfjörðum handtók ökumann á Patreksfirði um helgina.

Lögregla varð mannsins vör þar sem hann ók um Patreksfjörð og gaf honum merki um að stoppa. Maðurinn virti þau boð að vettugi og reyndi að komast undan. Það tókst þó ekki betur en svo að maðurinn ók bílnum á tré og skemmdi bíl sinn.

Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Patreksfjörður. Mynd úr safni.RÚV / Aðsent