MATVÍS sem er félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, t.d. bakara, framreiðslumanna, kjötiðnaðarmanna, matreiðslumanna og nema sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem „þungum áhyggjum er lýst af myndefni og fréttaflutningi af aðbúnaði svína hjá Stjörnugrís,“ eins og segir í yfirlýsingunni.
Einar Logi Pétursson, sem hefur viðurkennt tvö innbrot í bú Stjörnugríss, hefur birt tvö myndbönd sem hann segist hafa tekið í búinu.
Eigendur Stjörnugríss hafa ekki gefið fréttastofu kost á viðtali, en í skriflegri yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi í gær er haft eftir Geir Gunnari Geirssyni, forstjóra, að myndefnið gefi villandi mynd af starfseminni. Ástand dýranna megi rekja til fyrra innbrots Einars Loga.
Vilja standa vörð um fagmennsku
„Við erum bara að passa okkur að standa vörð um fagmennsku í greinunum okkar,“ segir Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS.
Í yfirlýsingu MATVÍS er illri meðferð á dýrum mótmælt og þess farið á leit að aðstæður svína Stjörnugríss verði rannsakaðar til hlítar og brugðist verði tafarlaust við, sé úrbóta þörf.
„Við erum bara að kalla eftir því að þegar svona kemur upp að það sé rannsakað og farið í saumana á því.“
Fagmennskan felst í velferð dýranna
Óskar segir að fagmennska í matvælagreinum felist ekki síst í að farið sé vel með dýr. Sé aðbúnaður óviðunandi geti það grafið undan trausti fólks á matvælaiðnaði.
„Ég held að eftirlitið sé alveg gott, en það má örugglega bæta við. En þarna erum við aðallega að kalla eftir því að þegar það koma athugasemdir við úrbætur, að þeim sé þá fylgt eftir.“
Spurður hvort það myndefni, sem birst hefur síðustu daga úr starfsemi Stjörnugríss komi honum og öðrum í stéttinni á óvart, segir Óskar svo vera.
„Það kemur alltaf á óvart þegar svona kemur upp. Við teljum alltaf að fyrirtækin séu að fylgja eftir lögum og reglugerðum. Til þess höfum við eftirlit, til að fylgja því eftir og fylgjast með.“
