Krefjast ákæru eða frekari rannsóknar vegna andláts Lúðvíks

Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu í Grindavík í janúar 2024, eru ósátt við ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður mál vegna andláts föður þeirra. Þau hafa kært ákvörðunina til ríkissaksóknara og vilja að ákæra verði gefin út eða málið rannsakað betur.

Greint var frá því í síðustu viku að héraðssaksóknari hefði fellt niður mál vegna andláts Lúðvíks. Hann vann að því að fylla í sprungu sem myndaðist í jarðhræringunum í Grindavík. Fimm höfðu réttarstöðu sakbornings.

Börn Lúðvíks krefjast þess aðallega að ríkissaksóknari felli ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi og að ákæra verði gefin út gegn þeim sem höfðu réttarstöðu sakbornings, öllum eða einhverjum þeirra. Þau telja að ákæra eigi viðkomandi fyrir manndráp af gáleysi og brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðvum.

Þau vilja jafnframt að verktakafyrirtækið sem Lúðvík vann hjá, verkfræðistofan sem hafði umsjón með verkinu og Náttúruhamfaratrygging Íslands verði saksótt.

Börn Lúðvíks finna að því að ábyrgð sé felld á hann. Þau segja að héraðssaksóknari hafi talið að Lúðvík hafi verið verkstjóri á verkstað og af því yrði ráðið að hann hefði borið ábyrgð á verkinu. Þau segja ekkert hafa komið fram um að Lúðvík hefði verið verkstjóri fyrr en í skýrslutökum haustið 2024. Börn Lúðvíks segja þetta fyrst hafa komið fram í athugasemdum verkfræðistofunnar, það sé af hálfu þeirra sem hafi hag af því að ábyrgð verði felld á Lúðvík.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.