Kuldi í húsum víða á höfuðborgarsvæðinu vegna stíflaðra vatnssía

Sjötíu útköll á einum degi

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa margir hverjir fundið fyrir minni þrýstingi á hitaveitukerfi í húsum sínum undanfarnar vikur. Ábendingar til Veitna skipta tugum á hverjum degi og segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi, útköllin fleiri nú en undanfarin ár.

„Þetta er frekar algengt á haustin sérstaklega, þegar notkun eykst á heita vatninu. Við erum að fara úr svona 7.000 rúmmetrum á klukkustund í svona rúmlega 16.000 rúmmetra á klukkustund eins og það er núna. Þá erum við að tala um yfir 4.000 lítra á sekúndu sem eru í notkun.“

Flest hafa útköllin orðið sjötíu á einum degi. Silja segir vandamálið hverfatengt – mest í Vesturbænum, Miðbænum, Lauganeshverfinu og Rauðarárholti, og einnig í Kópavogi og Hafnarfirði.

„Þetta eru þessi náttúrulegu óhreinindi sem fylgja heita vatninu. Það kemur náttúrlega beint upp úr jörðinni. Og þetta myndar útfellingar á lögnum og þegar notkun eykst þá hreinsast úr lögnum og það fer af stað og kerfin okkar eru mörg hundruð kílómetrar og þetta berst um þau og endar á ákveðnum stöðum.“

Brýnt að fólk hreinsi ekki síurnar sjálft

Svokallaðir síuskápar, lokaðir tækniskápar sem hýsa síubúnað sem grípur sand og önnur óhreinindi í heita vatninu áður en það dreifist um lagnakerfið, hafa verið settir upp í hverfum þar sem staðan er hvað verst. Silja segir að þeir hafi reynst vel og til standi að setja upp fleiri.

Hún brýnir fyrir íbúum að hafa samband og fá aðstoð við að hreinsa úr síum verði þeir varir við kalda ofna.

Og hvernig á fólk að bera sig að? Getur fólk sjálft hreinsað úr síunum?

„Nei, það má alls ekki gera þetta sjálft. Það er mikil slysahætta. Heita vatnið okkar er mjög heitt og fólk getur brennt sig. Þannig við viljum ekki að fólk sé að gera þetta sjálft,“ segir Silja.